Goðasteinn - 01.09.1966, Side 32

Goðasteinn - 01.09.1966, Side 32
þess arðs, er við sköpum. Slík ólga í mannlegu samfélagi er ekkert einsdæmi fyrir Island, en hvað sem allri úlfúð og hagsmunaárekstr- um líður, þá er það staðreynd, að fólki í landi okkar vegnar vel. Til þess að halda uppi því velmegunarþjóðfélagi, sem við lifum í og viljum halda áfram, er okkur mikil nauðsyn að þjóðin sé kunnáttusöm og menntuð vel, því að tæknivæðingin byggist í rík- um mæli á menntun og sérþekkingu. Þess vegna teljum við það sjálfsagt og nauðsynlegt, að allt ungt fólk hljóti mikla og góða fræðslu sér að kostnaðarlausu. Við gerum okkur fullljóst, að mennt- unin er sá máttur, sem eflir okkur tií að halda áfram á framfara- brautinni. Því ber okkur líka að vera vel á verði um skóla og skólakerfi, svo að hvor tveggja svari ætíð kröfum tímans eins og framast má verða. Hvort það tekst sem skyldi, skal látið ósagt, og er vafalaust þörf á meiri árvekni hjá okkur á þeim sviðum sem mörgum öðrum. En hvað sem því líður, þá eru margir skólar okkar góðir og skólahaldið kostar þjóðfélagið ærið fé. I það megum við aldrci horfa, því að fjárfesting í menntun hinnar ungu og vaxandi þjóðar mun að öllu samanlögðu hin merkasta og þarfasta fram- kvæmd okkar. Sakir fámennis okkar og fátæktar hefur ekki verið unnt að efla í landinu fullkomnustu skóla á efstu stigum eins og bezt gerist með stórþjóðunum. Við því er heldur ekki að búast um sinn. Þess vegna verðum við ætíð að senda margt námsmanna okkar til ýmis- legs tæknináms og annars sérnáms erlendis. Þessir menn, svo sem námsmenn hér heima, njóta einnig mikillar hjálpar frá þjóðfélagi okkar, þar sem námsstyrkir og námslán verða mjög mörgum að liði, þótt ef til vill væri þörf á slíku í enn ríkara mæli. Nú skyldum við ætla, að fólk, sem notið hefur ókeypis fræðslu, styrkja og lána á menntabrautinni, mundi með gleði helga því þjóðfélagi, sem alið hefur önn fyrir því, starfskrafta sína og þekkingu. Sannarlega gera það margir, en því miður langt frá því allir. Hvar sem við ferð- umst um nálæg lönd, rekumst við á unga og vel menntaða Islend- inga í starfi með öðrum þjóðum. Verði manni á að spyrja, hví þeir séu ekki heldur heima, þar sem jafnvel skortir menn í þeim grein- um, er þeir hafa lagt fyrir sig, er það gjarna viðkvæðið, að launin séu þar töluvert lægri en gerist í viðkomandi löndum. 30 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.