Goðasteinn - 01.09.1966, Side 34

Goðasteinn - 01.09.1966, Side 34
vegna fámennis þjóðarinnar. Minnimáttarkennd af þessu tagi grípur jafnvel suma gáfaða og menntaða menn, svo að þeir hopa af hólmi og helga öðrum og stærri þjóðum krafta sína og hæfileika. Þessi hvimleiða minnimáttarkennd og smæðartilfinning hrjáir líka all- marga, þótt þeir sitji heima og vinni landi sínu vel. Það eru menn af því sauðahúsi, sem sífellt eru að klifa á því, að íslenzka þjóðin sé fámcnn og að ekki séu hér fleiri einstaklingar heldur en íil dæmis íbúar við meðalgötu í erlendri stórborg. Þetta getur svo sem allt staðizt og verið satt og rétt, en sá er aðeins munurinn, og hann skiptir öllu máli, að íbúar við götu í stórborg lifa aldrei, hugsa aldrei og starfa aldrei sem sjálfstæð þjóð. Aftur á móti hafa fslendingar verið þjóð og lifað samkvæmt því, þrátt fyrir fámenni og fátækt. íslendingar eru líka sem betur fer flestir staðráðnir í að halda áfram á sömu braut alls ótrauðir, og svo lengi, sem þeir gera það, er þeim sigurinn vís. Svo lengi, sem þeir eru sér vel meðvitandi um tilveru sína og rétt sinn sem þjóðar, fær ekkert grandað þeim. Það er fyrst, ef þeir taka að lifa og hugsa eins og íbúar við götu í einhverri stórborg, sem voði er á ferðum. Vonandi þurfum við engu að kvíða og við viljum öll vona og trúa að þjóð okkar eigi fyrir sér bjarta og glæsta framtíð. Setjum traust okkar á æsku landsins, því að æskan í námi, starfi, leik og keppni gefur mikil fyrirheit og hennar bíður það veglega hlutverk að halda áfram því stórvirki, sem hafið er í landinu og gera enn betur en fyrri kynslóðir. fslandi allt! Lifið heil! Ræða flutt á Þjórsármóti 3. júlí 1966. ☆ ☆ ☆ Smælki Karl kom að Velli á Rangárvöllum, til Hermanns Johnson sýsiu- manns, baðst gistingar og var veitt hún. Frú fngunn Halldórsdóttir veitti honum góðan beina, kom svo með ullarreyfi tii hans og bað hann að taka ofan af því um vökuna. Hann svaraði: „Það er nú mysugrauturinn, sem mér er minnst um“ og varð ekki úr verki. Heimiid: Páll Sigurðsson frá Árkvörn. 32 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.