Goðasteinn - 01.09.1966, Side 39

Goðasteinn - 01.09.1966, Side 39
komið inn á Flatir, valllendisgrundirnar milli Hellna og Hvamms, sem þá voru engjar frá öllum bæjunum vestan undir Skarðfjalli en nú (1963) að mestu ræktað tún. I Hvammi var Jón smiður Jónsson, Árnasonar á Lágafelli í Landeyjum, síðar bóndi á Hlemmiskeiði, og vann að því að inn- rctta íveruhús hjá Eyjólfi Guðmundssyni. Hann leit út í birtinguna og taldi sig hafa séð Ijós á hreyfingu á Flötunum. Stefndi það ská- hallt á Steinteigana, sem er örnefni vestan í Skarðsfjalli. Sömu sögu hafði Þorsteinn Ingvarsson í norðurbænum í Hvammi að segja. Þegar orðið var vcl bjart, fórum við Guðbrandur til húsa, sem kallað var. Fór áðurnefndur Jón Diðriksson með okkur í það sinn, meðfram til að vita, hvort við sæjum braut eftir ljósið, en við urðum einskis varir, engin braut sást eða nein hreyfing á snjónum. Karlmennirnir á Hellum gættu vandlega að því sama, ljósið fór yfir þcirra slóð, en ummerki sáust cngin eftir það. Þetta þótti furðulegt og tæplega hægt að rengja, þegar jafnmargir voru til vitnis, hcimilisfólkið á fjórum bæjum. Því miður eru allir dánir, sem sáu þessa sýn með mér. Ég hef átt tal um þetta við Ingvar á Bjalla, bróður minn. Minnist hann þess, að hafa oft heyrt talað um það í Skarði, því þar ólst hann upp, en ljósið sá hann ekki. Hann var aðeins 6 ára, eins og fyrr segir, og ckki kominn á fætur, er ljósið leið hjá. Næsta vor leystist heimilið í Látalæti upp, þótt efni væru næg og tvístraðist fólkið í ýmsar áttir. Hittist sumt af því aldrei eftir það. Svo var það snemma í desember 1945, að fundum okkar Sigríðar Jónasdóttur bar saman í Reykjavík. Barst þá margt í tal, eftir jafnlangan tíma, þar á meðal þetta ljós - eða sýn - og spurði Sigríður fljótlega, hvort nokkur skýring hcfði á því fcngizt. Sigríður andaðist í Reykjavík 29. jan. 1946. Ýmsir héldu þetta furðuljós boða eitthvað óvenjulegt, en ekk- ert virtist benda í þá átt. Þessu gleymi ég aldrei og máske meðfram af því, að ég hef aldrei fengið neina skýringu á því. Eftir beiðni sr. Ragnar Ófeigssonar í Fellsmúla er þetta sögu- brot skrifað. ]. Á. Goðasteinn 37

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.