Goðasteinn - 01.09.1966, Side 40

Goðasteinn - 01.09.1966, Side 40
Einar Sigurfinnsson: Sigurður á Fljótum Það er gaman, þegar Goðasteinn bregður upp smámyndum af gömlum kunningjum. Þær rifja upp atvik frá liðnum tímum, sem geymzt hafa í hugarfylgsnum undir gleymskunnar fönn. Smáþáttur um Sigurð á Fljótum í síðasta hefti, eftir Einar Run- ólfsson, minnir mig á hálfgleymdan mann, sem ég þekkti nokkuð, þótt aldursmunur okkar væri mikill. Aðra þá, sem nefndir eru í greininni, þekkti ég vel. Ég fór nokkrum sinnum yfir Eldvatnið og þáði ferju af Sigurði eða Guðríði systur hans. Hún var, a. m. k. af honum, kölluð „lítii“, enda var hún smá vexti en líklega nokkuð kná. Hún var síðustu ár sín á Efri-Fljótum (Króki) hjá Stefáni Einarssyni og dó þar. Kona Sigurðar, Vilborg Stígsdóttir, var mjög heilsuveil síðari hluta ævinnar og var síðustu árin á sveitarfram- færi hjá Eyjólfi Eyjólfssyni í Botnum og dó þar. Þau Sigurður og Vilborg áttu eina dóttur, sem hét Sunneva. Hún varð síðar ráðskona hjá Guðmundi Eyjólfssyni á Grímsstöðum (Hala). Þeirra son er Sigurður, sem um tíma var ritstjóri Kristilegs vikublaðs en nú gefur út Rödd í óbyggð (f. 1900). Guðmundar er getið í Söguþáttum landpóstanna, enda var hann austanpóstur um tíma. Hann var hraustmenni og ramur að afli. Sigurður á Fljótum var hagleiksmaður, smiður á tré, járn og kopar (steypu). Smíðatól sín smíðaði hann sjálfur og kunni vel að herða stál svo biti. Meðal annarra vel gerðra gripa eftir Sigurð, sá ég ljábakka, og var stimplað S. S. á þjóið. Fleiri smíðisgripi sína mun hann hafa merkt á sama hátt. Ég kom a. m. k. einu sinni í smiðjuna, þar sem Sigurður var að smíða. Hann var þá ræðinn en hafði þó gát á, að ekki ofhitnaði járnið. 38 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.