Goðasteinn - 01.09.1966, Síða 44
Sóma gæddur sýnist mér
séra Þorsteinn prófastur,
ágætasti elsku vin
er hann hér á stræti.
Maddama Sigríður, mæta frú,
mjög er blíð í lyndi,
kona séra Þorsteins kær,
kvenna val og blómi.
Um Sigríði Jónsdóttur í Byggðarholti í Lóni: Hún var dóttir Jóns
Jónssonar hreppstjóra þar, giftist Guðmundi Sigurðssyni söðlasmið
á Höfn í Hornafirði.
Sigríður í Byggðarholti, rauð er hún sem rós,
lokkarnir falla sem liljan á hrís.
Dansar hún á hásumartíð.
Þá er næst vísa um Ingunni Jónsdóttur, systur séra Jóns Jónssonar
á Stafafeili. Hún var ráðskona hjá honum á fyrstu árum hans í
Bjarnanesi. Seinna var hún, eins og mörgum er kunnugt, húsfreyja
á Kornsá í Vatnsdal, kona Björns Sigfússonar alþingismanns:
Ingunn Jónsdóttir, mæta mey,
mörgum lofuð er hún.
Prófasts systir dygg og hýr,
blíð og ljúf í lundu.
Sennilega hefur eitt orð fallið úr þessari vísu, því ólíklegt er, að
karlinn hafi viljað telja Ingunni það til gildis, að hún væri lofuð
mörgum, heldur haft hendinguna svo: Af mörgum lofuð er hún.
Þá eru vísur um nokkra unga menn, sem urðu síðar nafnkunnir
bændur:
Um Sigurð Hannesson á Miðskeri:
Sigurður bezti yngismann,
hann er hér á torgi.
Gæfulegur, gáfaður,
kallast má einbirni.
Um Sigurð Jónsson á Stapa:
42
Goðasteinn