Goðasteinn - 01.09.1966, Side 48

Goðasteinn - 01.09.1966, Side 48
spá fyrir gestum, að sögn fyrri eigenda, en gestahögg hafa ekki heyrzt til hennar í Vík eða Skógum, svo ég viti. Búrkistur voru yfirleitt íslenzkar, jafnvíðar upp og með flötu loki, settar saman úr borðum, er hvert fyrir sig myndaði hlið eða gafl. Fengu smiðir þau breiðu borð úr fírkantstrjám, er stundum rak á fjörur. Frægur smiður í Landeyjum á 19. öld, ísleifur Eyjólfs- son, nefndur ísleifur smiður, smíðaði búrkistur í tugatali, ekki að- eins tréverk, heldur einnig lamir, skrár og lykla. Ferðaðist hann um nálægar sveitir til þeirra smíða. Á byggðasafnið væntanlega eina kistu eftir hann, frá Brúnum undir Eyjafjöllum. Mikla og vandaða búrkistu á safnið frá Gröf í Skaftártungu, úr Flnausabúinu gamla í Meðallandi. Prýða hana útskornir okar á loki. Teigskistan er áreiðanlega íslenzk og vafalaust fatakista að upp- hafi. Gerð hennar bendir til fyrri tíma. Aðaleinkenni hennar í ytri gerð er botn breiðari en lok. Á hún fáar systur á Suðurlandi. Ég sá hana fyrst á geymslulofti í íbúðarhúsi Erlends Erlendssonar f Teigi, þar sem hún hélt áfram að eiga heima hjá eftirmanni hans, Árna Jóhannssyni. Flún var þá illa leikin af Elli kerlingu, lok og handraðar brottu og botn dottinn frá af fúa. Kistuskrokkurinn sýndi þó, að vel hafði verið vandað til hans að efni og smíði. Leifar af rauðri málningu sáust allvíða og raufar innan á borðum sýndu gerð handraða. Hafði annar verið af venjulegri gerð, grunnur þver- stokkur við gafl, en hinn hafði náð allt til botns við gaflinn beint á móti. Far eftir skráarlauf sást umhverfis lykilgat og glöggar minj- ar eftir höldur á göflum. Nægilega mikið var eftirskilið til þess að gera kistuna upp, aðeins ef ég fengi fjöl hæfilega langa og breiða í lok. Leitin að lokfjöl bar um síðir árangur, og nú er þessi gamla kista risin upp, svo að sómasamlegt má kalla. Allt er þcgar þrennt er, sagði álfkonan forðum, og þrennt gerir Teigskistuna að merkum safngrip: aldur, útlit og saga. Um aldamótin 1700 var sýslumaður í Rangárvallasýslu Hákon Hannesson á Skammbeinsstöðum í Holtum, giftur Þrúði Björns- dóttur sýslumanns í Espihóli, Pálssonar. Munu þau hafa gifzt um 1690. Manntalsárið 1703 bjuggu þau á Skammbeinsstöðum og bú- staður er hinn sami 1710. Nokkru seinna mun Hákon sýslumaður hafa flutt á eignarjörð sína, Lambalæk í Fljótshlíð, þar sem hann 46 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.