Goðasteinn - 01.09.1966, Síða 50
maðurinn sneri þegar frá ánni, reið út að Drangshlíð og sagði sínar
farir ekki sléttar. Hann var spurður, því hann hefði ekki riðið
fyrir húsfrúnni út í ána, eða borið sig að því að bjarga. Svaraði
hann þá með setningu, sem lengi hefur verið í minnum höfð: „Nei,
ég er í tvennum, mórauðum sokkum og má ckki vaða“.
Lík frúarinnar var flutt á kviktrjám út að Teigi, og var hringt
kirkjuklukkum á öllum kirkjustöðum, er líkfylgdin fór framhjá á
leiðinni. Fljótt bar á því, að frúin þótti ekki liggja kyrr í gröf sinni.
Hún hafði átt vandaða fatakistu og hélt sveimurinn sig helzt að
henni um langan aldur. Fylgdi kistan bænum í Teigi, þótt þar yrðu
ábúendaskipti, og var jafnan nefnd frúarkistan. Svipur frúarinnar
lét talsvert að sér kveða allt fram á 19. öld, en úr því fór að dofna
yfir honum. Bræður tveir, Ólafur og Tómas, Jónssynir, bjuggu í
Teigi um aldamótin 1800. Hjá Ólafi var á vist um skeið mágur
hans, Þórður Halldórsson. Hann var heitbundinn stúlku inni á
Hlíðarenda og fór oft að heimsækja hana og varð þá seint fyrir.
Piltar í Teigi sváfu á skálalofti. Félagi Þórðar vaknaði við það,
að mikið högg var barið á dyrnar að svefnloftinu. Hugði hann það
glettur Þórðar og kallaði: „Annað stærra, lagsmaður“. Kvað þá
við annað högg miklu meira, og annar dyrastafurinn þeyttist í
tvcimur hlutum inn á loftið. Var hann úr rauðaviði, gildur vel. Gert
var við hann. Þekkti Guðmundur Guðmundsson í Teigi hann í
árefti þar á bænum á seinni hluta 19. aldar. Frúnni var kennt um
þetta húsbrot, engum öðrum var þar til að dreifa.
Um aldamótin 1900 var frúarkistan í búi Arnþórs Einarssonar
í vcsturbænum í Teigi. Man Helga Pálsdóttir á Grjótá, sem nú er
89 ára (1966), hana vel frá þeim tíma. Segir hún, að ártal hafi verið
málað á annan handraðann cn man það ekki svo glöggt, að skráð
verði. Kistan var í viðbyggingu íbúðarhússins, inni við gafl. Þar
voru ýmsir búshlutir varðveittir. Þessu húsi var skipt í tvennt, og
var fremri hlutinn smíðahús.
Konur hvolfdu mjaltaskjólum á frúarkistuna að kvöldi. Að
morgni stóðu þær oftast á réttri lögg fram við smíðahúsdyr. Það er
hið síðasta, sem sagt er af fylgju frúarkistunnar. Vona ég nú, að
hinn forni eigandi láti sér vel líka þá endurbót, sem gripur hans
hefur fengið.
48
Goðasteinn