Goðasteinn - 01.09.1966, Side 62

Goðasteinn - 01.09.1966, Side 62
Oddur Oddsson á Heiði: Fjallabaksleið Fyrr á tímum sóttu Skaftfellingar, austan Mýrdalssands, mest verzlun sína út á Eyrarbakka um langan og strangan veg. Mörg þung straumvötn eru á þeirri leið sunnan jökla. Skaftfellingar fóru því mjög mikið að fjallabaki, sem kallað var, upp Tunguheiðar og vestur Rangárvallaafrétt (Laufaleitir). Þetta hefur verið mjög fjöl- farin leið, eins og sjá má enn víða á Laufaleitum, þar sem eru margir, samliggjandi götuslóðar. Oft hafa þessar ferðir verið erfiðar vegna veðurs og færðar. Reið það fjórum mönnum að fullu haustið 1868, svo sem alþekkt er. Urðu þeir úti vestarlega á Mælifellssandi. Fundust bein þeirra ekki, fyrr en að tíu árum liðnum, hafa vafalaust legið lengst af undir sandi og jafnvel snjó. Á Mælifellssandi geta veður orðið mjög vond og færð afleit vetur og sumar, enda liggur sandurinn milli Mýrdalsjökuls og Torfajökuls. Má þar kallast mjótt skarð milli jökla. Vigfús heitinn Gunnarsson, bóndi á Flögu, sagði mér, að fyrsta sinn, sem hann fór þessa leið, þrettán ára, nálægt viku af júlímán- uði, hafi verið svo mikill snjókrapaelgur á sandinum, að þeir fóru með lestina utan í Mýrdalsjökli, því þar var fastara undir. Þetta hefur verið árið 1883. Ég tel mestar líkur fyrir því, að menn þeir, er úti urðu á Mæli- fellssandi hafi örmagnazt af þreytu af að kafa snjóinn á sandinum, sérstaklega tveir þeirra, annar óharðnaður unglingur og hinn óhraustur. Svo er líka sagt frá beinafundinum, að bein tveggja manna lágu saman undir brekáni, er yfir þá hafði verið breitt. Snjórinn og sandurinn höfðu varðveitt brekánið öll þessi ár og enn 60 Goðastemn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.