Goðasteinn - 01.09.1966, Side 63
/ Hvanngili
mun snefill finnast af því á slysstaðnum. Sæmundur Jónsson á
Borgarfelli fylgdi þeim félögum út á Skiptingaöldu, en þá voru eftir
fullir 14 km út yfir sand og það versta leiðin hvað veður og færð
snerti. Ólíkt finnst mér, að bráðkunnugur maður, eins og Þorlákur
heitinn í Gröf var talinn, hafi villzt mikið. I öðru lagi var útsynn-
ingséljagangur þennan dag en gekk síðar í norðanstórhríð. Bein
þeirra félaga fundust undir klöpp norðan á móti, mjög nálægt
réttri leið. Bendir það til, að þeir hafi verið lagztir þar fyrir, áður
en aðalveðrið skall á, norðanbylurinn.
Þeim mönnum fer óðum fækkandi, er þekkja Fjallabaksleiðina
gömlu. Vil ég ógjarnan, að hún gleymist alveg. Ætla ég því að
lýsa henni hér og hef þar notið leiðbeininga kunnugra og góðra
manna úr Skaftártungu út að Hólmsá. Þakka ég þann vegvísi:
Upp úr Skaftártungu eru tvær leiðir útundir Hólmsá. Önnur
liggur um Bjarnargötu upp frá Búlandi. Hún var helzt farin frá
fjórum efstu og utustu bæjum í Skaftártungu, Skaftárdal og heið-
arbæjum á Síðunni. Bjarnargata er mitt á milli Búlandssels og
Svartanúps, bæja, sem nú eru í eyði. Áfram var haldið um Hurðar-
bak, yfir Þorvaldsá neðan Geldingaskers, yfir Tungufljót, upp
innstu Gæsatungur og norðan við Tjaldgilsháls, en þar koma sam-
an leiðirnar, eins og síðar verður sagt.
Goðasteinn
61