Goðasteinn - 01.09.1966, Side 66
Vegurinn liggur upp úr Hvanngili rétt syðst. Beygir hann þá
alveg í norður, um svokallaða Vegahlíð, vestan undir Ófæruhöfða,
og svo vestur yfir Bratthálskvísl, en þar koma saman leiðirnar,
eins og áður segir. Nú liggur leiðin áfram fyrir norðan Torfatind,
vestur með Grashagakvísl og yfir hana skammt fyrir neðan Gras-
haga. Þar var farið upp úr djúpu gili, norðan undir Sátubotnum,
út á Launfitarsand og niður á Launfit. Oft mun hafa verið áð og
gist á Launfit. Þar eru ágætir hestahagar, bæði mýri og valllendi,
með Markarfljóti. Þar sjást gamlar hlóðir á fljótsbakkanum, er
notaðar hafa verið aðallega af ferðamönnum og máske eitthvað
af fjallmönnum.
Þegar komið er yfir Markarfljót, sem rennur með Launfit að
vestan, liggur leiðin suður úr Faxa, sem er langur fjallgarður frá
norðri til suðurs, og vestur yfir hann í skarði, nokkuð innarlega.
Er þá haldið suður með honum að vestan og niður svokallaða
Ferðamannaöldu, niður á Sultarfitjar, yfir Hvítmögukvísl í Reið-
skarði og þá suður Hungursfitjar. Þar eru allgóðir hestahagar, sem
hafa víst oft verið notaðir, sérstaklega í austurleið. Þá liggur leiðin
gegnum Hungurskarð niður í Kerlingarhraun. Þar er vegurinn
ruddur á nokkrum kafla og vel varðaður. Annars hefur þessi leið
öll verið vörðuð en vörðurnar víða strjálar.
Fyrir neðan Kerlingarhraun er Blesá, sem rennur þar í Eystri-
Rangá. Sunnan við Blesá liggur vegurinn neðan við Blesármýri og
þá upp á Dalöldur, en svo nefnast háar melöldur niður af Tinda-
fjallajökli. Voru þær víða með góðum grasverum, sem allt fór í
kaf af ösku í Heklugosinu 1947.
Þegar kemur suður af Dalöldum er farið niður Rauðöldu, ofan
í Lambadal, niður dalhraunið niður í Daltanga og þar yfir Eystri-
Rangá. Var svo farið niður með henni, að vestan, niður í Fosshaga,
yfir Hraunháls, niður á Selflöt, og er þá orðið skammt að Fossi,
sem er fyrsti bær á Rangárvöllum, þegar komin er Fjallabaksleiðin,
að austan. Skammt fyrir neðan Foss er eyðibærinn Árbær, sem var
í byggð, þegar þessi leið var fjölfarin. Hef ég heyrt eftir gömlu fólki,
sem heima átti á þessum bæjum, að þar hafi oft verið mikill gesta-
gangur um lestatímann.
Leið þessi, sem er milli 90 og 100 km milli byggða, er víða ein-
64
Goðasteinn