Goðasteinn - 01.09.1966, Side 72
Unglingafræðsla byggðanna er til dæmis í molum, og mörgum í
sveit er ókleift að senda börn sín til mennta, þótt námsgeta, gott
uppeldi og einlægur vilji til náms sé fyrir hendi.
í bæjum er aftur á móti skylt að ljúka bóklegu unglingaprófi,
þótt saman fari hjá sumum þessara nemenda andúð á námi og
skóla, neikvœð afstaða til kennara og siðferðilegt þrekleysi.
Hér er hallað rétti hinna strjálu byggða, og má ekki iengur við
svo búið standa. Því má heldur aldrei gleyma, að íslenzk tunga,
saga og bókmenntir eru í svo órofa tengslum við landið sjálft, sem
þjóðin hefur yrkt í meir en þúsund ár, að þau tengsl mega aldrei
rofna, þrátt fyrir breytta þjóðfélagshætti.
Annars er vá fyrir dyrum.
Eyfellsk byggð er rík af kennileitum, sem hvert á sína sögu,
hellar, fossar, fjallstindar. Falleg helgisögn er jafnvel tengd við
reyniviðarhrísluna í Holtsnúp.
Þessar sögur sagði móðir barni öld eftir öld, kynslóð eftir kyn-
slóð. Þær voru lifandi á vörum þjóðarinnar. Breyttar aðstæður hafa
gjörbreytt þessu. Þjóðin er að týna þessum sögum, þótt þær séu
skráðar á bók. Þær eru ekki lengur lifandi þáttur þjóðlífsins.
Fyrrgreind starfsemi í Hamragörðum gæti orðið hér að liði,
hjálpað til að varðveita þessar sagnir þar um slóðir og veitt þeim
lífskynngi á ný. Yrði Njáls saga ekki betur skilin, metin og virt, ef
iesandinn hcfði Bergþórshvol, Hlíðarenda og Kirkjubæ á næsta leiti?
Væri ekki nokkuð á sig leggjandi tii að kynna íslenzkri æsku
þessa merku bók á þennan hátt?
Ég efast um, að margar sýnir séu fegurri hér á landi en að
horfa til fjalla frá Gunnarshólma á heiðríku vor- og haustkvöldi.
Að minnsta kosti hefur enginn málari náð þeirri myndauðgi, er birt-
ist í kvæði Jónasar Hallgrímssonar af þessum slóðum.
Hann kvað einnig um gljúfrabúa, hamragarða og hvíta tinda.
Skáldið hefur án efa komið að Hamragörðum og orðið fyrir
áhrifum af fegurð þeirra, og er freistandi að geta sér þess til, að
Jónas sé einmitt hér að lýsa Hamragörðum undir Eyjafjöllum.
Gljúfrabúi, gamli foss!
gilið mitt í klettaþröngum!
70
Goðasteinn