Goðasteinn - 01.09.1966, Síða 75
urinn gerðist: „í Landeyjum suður varð Sigvaldi nokkur Jónsson
að bana þeim manni, er Ólafur hét Narfason.“ En því segir þar í
„Landeyjum suður“ að annáli þessi er ritaður noðrur í Svarfaðar-
dal. Höfundur hans er með vissu talinn Eyjólfur prestur Jónsson á
Völlum (1670-1745), einhver lærðasti Islendingur á fyrra hluta 18.
aldar. Er mælt, að faðir Eyjólfs hafi látið hann fara til sjóróðra
suður í Garð eina vertíð, svo hann læsi sig ekki í rot. —
Kjósarannáll segir samt miklu ýtarlegast frá atburðum. Hannes
Þorsteinsson telur höfundinn vera séra Einar prófast Einarsson í
Görðum á Álftanesi (1649-1690). Er líklegt, að hér valdi miklu
um, að samgöngur voru örar orðnar austan úr sveitum til byggð-
anna við Faxaflóa. Var því oft hægt að fá allnákvæmar fréttir með
ferðamönnum. I annál séra Einars segir svo frá:
„Mál slæmt í Landeyjum eystri, svo háttað, að bóndinn á
Önundarstöðum, Jón Erlendsson, reið til kirkju með tveimur son-
um sínum, item hans hjáleigumaður, Ólafur að nafni, með sinni
kvinnu, ætluðu til sakramentis. Kýttust þeir feðgar og maðurinn á
um beit. Svo lauk, að Sigvaldi sonur Jóns og Ólafur tókust á, en
Ólafur féll fyrir Valda, er þjakaði að honum, þar til blóð rann
af munni Ólafs; lifði hann síðan tvo daga. Valdi var aftekinn á
alþingi um sumarið.“ -
Önundarstöðum fylgdu til forna fjórar hjáleigur: Naust, Rima-
kot og Önundarstaðahjáleigur tvær, efri og vestari. Þá er jarðabók
Árna Magnússonar og Páls var saman tekin, fylgja jörðinni þessar
tvær síðasttöldu hjáleigur, önnur þeirra, sú vestari, eyðilagðist vorið
eftir stóru bóluna, þ. e. 1708. Ég ætla, að Ólafur Narfason hafi búið
á þessari hjáleigu. Hefur þetta verið lélegt jarðnæði og landþröngt,
svo ekki var nema von að fénaður Ólafs gengi í haga heima-
bóndans. Hjáleiga þessi mun hafa verið vestur af Önundarstöðum,
svo sem nafnið bendir til. Sandur olli oft búsifjum í þessu hverfi
og eyddist hjáleigubýli þetta ár frá ári; til marks um það var sífellt
lækkandi landskuld. Var hún í fyrstu 50 álnir en síðustu árin ekki
nema 20 álnir. Önundarstaðastorfan var um þessar mundir í eigu
Breiðabólstaðarkirkju, en heimabóndi hirti afgjöld af hjáleigunum.
Þá, er manntalið í Rangárvallasýslu var skráð 1703, er kominn
Goðastemn
73