Goðasteinn - 01.09.1966, Page 85
IV
Eru kotin Odda hjá:
Ekra, For og Strympa,
Vindás, Kumli, Kragi þá,
kemur Oddhóll skammt í frá.
Hér eru kot talin sólarsinnis kringum höfuðbólið. Oddaklerkar
kunnu lag á að raða kotunum kringum hefðarsetrið. Þannig slógu
þeir tvær eða fleiri flugur í sama höggi. Túnin í Oddahverfi voru
á einum, samfelldum hólahrygg, umkringdum mýri. Flestir út-
jaðrar tilheyrðu hjáleigunum. Hjartað úr skákinni fylgdi prests-
setrinu. Hjáleigufólkið varði Oddatúnið um leið og útskefjar sínar.
Þessu líkt virðist einnig hafa verið um engjaskiptin. Engjaspildur
hjáleigumanna lágu milli Oddaengja og bithagans. Allt virðist
þarna vera á eina bók lært: Að hagnast eins mikið og hægt var
á kotungunum.
Nú er runnin upp ný öld í Oddahverfi. Vansældarkotin For og
Strympa fóru í eyði fyrir síðustu aldamót, Kumli og Kragi á öðrum
fjórðungi aldar. Oddhólsbær stóð fyrr á dálitlum hóli úti í mýri.
Bærinn var fluttur á flatlendan móa — og heitir Oddhóll enn. Þar
stendur nú eitt stórbú héraðsins. í Langekru og á Vindási eru
miklar umbætur orðnar. Á báðum stöðum er búið myndarlega.
Sólvellir standa til stórra bóta og eru þó nú þegar góðbýli með
mörg hundruð hesta túni. í Odda er ekki bú. Hún gerist enn hin
gamla saga, að hinir síðustu verða fyrstir.
Ritað 1964, H. H.
Goðasteinn
83