Goðasteinn - 01.09.1966, Síða 86
TIL LESENDA
Goðasteinn sendir enn sem fyrr vinum sínum og velunnurum
kveðjur og árnaðaróskir með þökk fyrir liðinn tíma. Vonar hann, að
þau samskipti haldist á komandi ári og árum.
Gert er ráð fyrir að útgáfa ritsins og verð haldist óbreytt á
næsta ári.
Jón Guðmundsson í Fjalli á Skeiðum minnist á þátt um Einar
í Kaldaðarnesi í síðasta hefti í bréfi til ritsins. 1 þættinum er talið,
að Ófeigur Vigfússon í Fjalli hafi átt 8 dætur. Jón skrifar: „Þær
voru 9, og eftir því sem ég bezt veit, eru ættir komnar frá þeim
öllum. Ein þeirra giftist ekki, en börn átti hún með Ólafi Stefáns-
syni, er giftur var Margréti Ófeigsdóttur. Þetta var Ingunn Ófeigs-
dóttir. Meðal afkomenda hennar var Júlíus á Hrútsstöðum. Synir
Ófeigs voru tveir: Ófeigur í Fjalli og Vigfús í Framnesi.
Aftur á móti voru dætur Kristínar í Fjalli 5. Ein þeirra, Val-
gerður, dó 2. sept. 1850. Ég set hér til gamans afrit af skiptagerð
eftir Valgerði:
Erfingjar: 1. Móðir hennar, Madame Kristín Ólafsdóttir, kona
Ófeigs hreppstj. Vigfússonar í Fjalli. 2. Aisystkini hinnar látnu: a)
Ólafur í Fjalli, 20 ára, b) Stefán á Stóra-Fljóti, 19 ára, c) Guðný,
29 ára í Hjálmholti, d) Sigríður, 18 ára, e) Gróa, 17 ára, f) Elín,
14 ára, allar í Fjalli. Upphæð búsins rd. 167,24. Tii skipta rd. 120,38.
Sama dag er svo þessi skiptagerð: Árið 1851, þann 3. sept., var
skipt db. Stefáns sál. Stefánssonar á Stóra-Fljóti, sem dó 29. jan.
1851. Erfingjar: móðir hans og alsystkini (sbr. hér á undan). Upp-
hæð búsins: rd. 203,78. Til skipta: rd. 169,58.“
84
Goðasteinn