Goðasteinn - 01.03.1967, Side 28
gekk inn til Einars og gesta hans. Ég man enn orð Einars þá:
„Þakka þér fyrir, Kjarti minn. Þessari stund gleymi ég aldrei.
Ég er viss um, að hér hcfur verið inni há vera“.
Eíín Steindórsdóttir Bricm í Oddgeirshólum ólst upp í Hruna
hjá foreldrum sínum, sr. Steindóri Briem og frú Camillu Sigríði
Pétursdóttur. Hún var snemma söngvin, unni tónlist og spilaði um
skeið við messur í Hrunakirkju. Ég veitti öllum, sem með þá hluti
fóru, sérstaka eftirtekt og laðaðist að þeim.
Ég eignaðist góðan vin, þar sem Elín var. Hún giftist Árna
Árnasyni frá Hörgsholti. Þau bjuggu í Oddgeirshólum í Flóa. Ég
var þar jafnan heimilisvinur. Árni dó 1936 og var jarðsettur í Hraun-
gerði. Elín bað mig að spila við jarðarförina. Ekkert er mér sér-
staklega minnisstætt frá athöfninni í kirkjunni, fyrr en kom að
því að spila, meðan kistan var borin út. Ég hafði valið lagið: „Ave,
maris stella“ eftir Grieg. Ég byrjaði að spila og um leið kom yfir
mig þessi ólýsanlega tilfinning, sem áður hafði hrifið mig og gagn-
tekið. Gleði, sæla og friður streymdu um hverja taug. Ég varð líkt
og uppnuminn í æðra heim. Þessi ógleymanlega tilfinning varaði
lagið á enda. Guðný Hróbjartsdóttir á Þjótanda var við jarðar-
förina. Einar maður hennar hafði átt þetta hljóðfæri áður. Guðný
vék sér að mér, áður en lagt var af stað heim, og sagði: „Nú
þekkti ég fyrst hljóðin í orgelinu".
Elín í Oddgeirshólum skrifaði mér bréf 7. júní þetta ár. Þar seg-
ir m.a.: „En tónarnir úr orgelinu, sérstaklega, þegar kistan var
borin út úr kirkjunni, fannst mér friða svo mínar sáru tilfinningar,
að mér liggur við að segja, að þeir hafi tekið hálfa sorg mína“.
Ári seinna missti Elín Steindór son sinn. Hún skrifaði mér þá
að nýju á svipaðan veg: „Manstu, hvað ég skrifaði þér í fyrra?
Mér fannst þú taka hálfa byrði mína. Er nú nokkur leið, að þú
komir einnig, til að létta mér siíka stund“?
Þetta, sem nú hefur verið rakið, er reynsla, sem aldrei verður að
fullu sögð með orðum, dropar frá því dýrðarhafi, sem dylst okkur
oftast í daganna önn.
26.11. 1966. - Þ. T.
26
Goðasteinn