Goðasteinn - 01.03.1972, Page 6

Goðasteinn - 01.03.1972, Page 6
ingar og geymslu talsvert magn af kjöti fyrir það. En ekki varð af samkomulagi um flutning sláturhússins frá Djúpadal að Hvols- velli eins og ýmsir vildu á þeim tíma. Hins vegar hélt Kaupfélagið áfram að sjá um slátrunina í Djúpadal og var húsnæði aukið þar og endurbætt frá því sem verið hafði. Á aðalfundi 1942 kom fram mikill áhugi hjá stjórn og framkvæmdastjóra á því að auka sjóði félagsins, sem voru léttir eftir kreppuárin. Einnig vildu menn efla innlánsdeild þess til mikilla muna. Afkoman á árinu 1941 hafði verið góð og því til staðfestingar var samþykkt að greiða 8% af tekjuafgangi í stofnsjóð og arð til félagsmanna. Þá var samþykkt að endurskoða lög félagsins og til þess kosnir Björn Fr. Björnsson, sýslumaður, Sveinn Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri, og Sigurþór Ólafsson, formaður félagsstjórnar. Þá var ákveðið að fjölga um mann í varastjórn og Björn Fr. Björns- son kosinn, en fyrir var Sigfús Sigurðsson. Helgi læknir Jónasson baðst undan endurkosningu sem vara- endurskoðandi og var þá kosinn í hans stað Klemenz Kr. Kristj- ánsson á Sámsstöðum. Árið 1942 var mikið framfara- og framkvæmdaár hjá K.H.S. Reisti það um sumarið stóra vörugeymslu og bifreiðaverkstæði. Bifvélavirki og forstöðumaður frá upphafi var Þorlákur Sigurjóns- son og gegnir því starfi enn. Starfsmönnum fjölgaði mjög, verzl- unin jókst jafnt og þétt og verkefnin urðu sífellt fjölþættari. Þessi auknu umsvif urðu mjög til þess að skapa atvinnu og sést það bezt á því, að þetta ár voru byggð þrjú hús og þar af eitt með tveimur íbúðum í nágrenni Kaupfélagsins. Sama ár var og reist póst- og símstöðvarhús suður við Austurveginn og samfara þeirri framkvæmd mun nafnið Hvolsvöllur endanlega hafa festst við þessa nýju byggð, er um þetta leyti fór að taka á sig nokkurn þéttbýlissvip. Þrátt fyrir byggingaframkvæmdir og aðra fjárfestingu hjá K.H.S. árið 1942, varð afkoman góð og þó enn betri árið 1943. Nokkra hugmynd um hin auknu umsvif gefur það, að á aðalfundi 1944 kom í Ijós að vörusalan árið á undan nam samtals 2Y2 milljón króna og hafði þá aukizt frá 1942 um 49,3%. Sjóðir voru efldir og arður greiddur til félagsmanna, sem fjölgaði talsvert með 4 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.