Goðasteinn - 01.03.1972, Page 10
félagsins að vanda og var afkoma þess eftir árið 1945 hagstæð t
betra lagi og samþykkt að greiða 10% rekstrarhagnaði í arð
til félagsmanna.
Viðræðunefnd kaupfélaganna á Hvolsvelli og Rauðalæk hafði
unnið að sameiningarmálum þeirra um skeið ásamt fleiri aðilum,
þar á meðal Vilhjálmi Þór, forstjóra S.Í.S. Á sameiginlegum
fundi stjórna, framkvæmdastjóra og endurskoðenda félaganna
ásamt Vilhjálmi Þór hinn 9. marz 1946 var lögð fram áætlun um
samruna félaganna í meginatriðum. Urðu miklar umræður um
máiið og meðal annars lagði forstjóri S.Í.S. á það áherzlu í ræðu
sinni, að einu stóru fyrirtæki vegnaði yfirleitt betur en mörgum
litlum og því mundi samkeppnisaðstaða kaupfélaganna styrkjast
við sameiningu. Helztu atriði í áætlun viðræðunefndar hljóðuðu á
þá leið, að nýja félagið skyldi heita Kaupfélag Rangæinga. Starfs-
svið þess væri Rangárvallasýsla. Heimili og varnarþing yrði að
Arnarhvoli. Útibú skyldu starfrækt að Rauðalæk, Seljalandi og
víðar, ef þurfa þætti. Uppgjör, athugun og mat færi fram hjá
hvoru félagi fyrir sig á undan sameiningu og stjórnir, endurskoð-
endur og framkvæmdastjórar færu frá hjá báðum, en síðan yrði
kosin ný stjórn á stofnfundi hins nýja félags, er svo réði sér fram-
kvæmdastjóra. Samþykkti fundur þessi að vinna bæri áfram að
sameiningu félaganna og fyrsta skrefið væri að kynna málið fyrir
félagsmönnum í hinum ýmsu deildum beggja félaga, og leita
fylgis þeirra við hugmyndina. Var það og gert og reyndust menn
yfirleitt fylgjandi því að félögin yrðu sameinuð, ef slíkt þætti
hagkvæmt.
Snemma árs 1947 urðu miklar umræður á stjórnarfundi um
nauðsvn þess, að reist yrði bráðlega nýtt verzlunarhús fyrir Kaup-
félagið á Hvolsvelli. Var um þetta leyti verið að skipuleggja þorp-
ið cg ákveða byggingalóðir. Samþykkti stjórnin að tryggja félag-
inu athafnasvæði suður við þjóðveginn vestan símstöðvarhússins.
Þá samþykkti stjórnin að láta smíða skemmur til geymslu á timbri
og fleiri vörum og var það fljótlega framkvæmt. Einnig var reist
íbúðarhús fyrir starfsfólk á þessu ári.
Á aðalfundi 23. maí 1947 kom fram að afkoman hafði orðið góð
árið 1946, þrátt fyrir fremur erfitt verzlunarárferði og var hinum
8
Goðasteinn