Goðasteinn - 01.03.1972, Side 12
cyjar, Kaupfélagsins „Þófs“ og Kaupfélags Rangæinga til fundar
í Hvolsskóla til þcss að ræða um möguleika allra félaganna á sarn-
einingu. Á fundinum mættu 6 fulltrúar frá Kf. Hallgeirseyjar, 2 frá
Kf. Þór og 7 frá Kf. Rangæinga. Samþykkt var ályktun um að
kjósa tvo menn úr stjórn hvers félags til að undirbúa og ræða
mál þetta og semja frumdrætti að samkomulagi félaganna, er síðar
yrði rætt í stjórnum þeirra og athugað hvort lagt skyldi fyrir aðal-
fundi og deildarfundi félaganna. Einnig skyldi forstjóri S.Í.S. hafð-
ur með í ráðum.
Nýr fundur var svo haldinn um sama mál hinn g. apríl sama
ár. Mættu þar Sigurþór Ólafsson, Ölvir Karlsson, Sveinbjörn
Högnason, Ólafur H. Guðmundsson, Magnús Kristjánsson, kaup-
félagsstjóri og Hallgrímur Jónasson, kaupfélagsstjóri. Einnig Vil-
hjálmur Árnason lögfræðingur frá S.f.S. Á fundinum var lagt fram
bréf frá stjórnarmönnum Kaupfélagsins „Þórs“, þar sem þeir
tjáðu sig ckki geta unnið áfram að sameiningu félaganna fyrir
sitt leyti. Þar mcð hafði skapazt nýtt viðhorf, en engu að síður
ákvað þessi fundur að vinna bæri eftir megni að sameiningu hinna
tveggja, Kf. Hallgeirseyjar og Kf. Rangæinga, byggðri á þeim
grundvelli, sem lagður var af stjórnum félaganna beggja árið 1946.
Mál þetta var síðan lagt fyrir deildarfundi og aðalfundi félaganna
bcggja og samþykkt.
Hinn 1. júlí 1948 var haldinn að Laugalandi í Holtum fulltrúa-
fundur beggja félaga, þar sem sameining þeirra var formlega og
en.danlega gerð og stofnað eitt nýtt félag í stað hinna gömlu
tvcggja. Á fundinum mættu formenn félaganna og fulltrúar. Einnig
var þar Vilhjálmur Þór, forstjóri S.I.S., Vilhjálmur Jónsson, lög-
fræðingur, og Baldvin Þ. Kristjánsson, crindreki. Formaður Kf.
Rangæinga, Ölvir Karlsson, setti fund og tilnefndi Sigurþór
Ólafsson, formann Kf. Hallgeirseyjar, til að vera fundarstjóra, en
hann stakk upp á Þorsteini Þorsteinssyni sem fundarritara. Fund-
arstjóri skýrði frá því, sem unnið hafði verið að sameiningu
félaganna. Hið sama gerði og Ölvir Karlsson. Fundarstjóri lýsti
því næst yfir, að samkvæmt því sem fram hefði komið, væru
félögin formlega sameinuð í eitt.
Vilhjálmur Árnason lögfræðingur las upp og bar undir fulltrúa
10
Goðasteinn