Goðasteinn - 01.03.1972, Blaðsíða 13
samþykktir fyrir hið nýja kaupfélag og voru þær samþykktar lið
fyrir lið og í heild. Þá var kosin sjö manna stjórn og hlutu þessir
kosningu: Sigurþór Ólafsson, Kollabæ, Ölvir Karlsson, Þjórsár-
túni, Ólafur H. Guðmundsson, Hellnatúni, sr. Sveinbjörn Högna-
son, Breiðabólstað, Björn Fr. Björnsson, sýslumaður, Guðmundur
Þorleifsson, Þverlæk, og sr. Sigurður Haukdal, Bergþórshvoli.
Varamenn í stjórn voru kjörnir Guðjón Jónsson, Tungu og Árni
Jónsson, Holtsmúla, og endurskoðendur ísak Eiríksson, Ási og
Guðjón Jónsson, Hallgeirsey og varaendurskoðendur Sæmundur
Óiafsson, Lágafelii og Benedikt Guðjónsson, Nefsholti.
Samþykkt var að félagið starfaði sem tvær fjárhagslega sjálf-
stæðar deildir til næstu áramóta, cnda væru sömu forstöðumenn
á hverjum stað. Ræður voru fluttar og hinu nýja félagi árnað
hcilla. Á stjórnarfundi hinn 7. júií var Sigurþór Ólafsson kosinn
formaður og Ölvir Karlsson varaformaður stjórnar hins nýja
Kaupfélag Rangæinga.
Goðasteinn
11