Goðasteinn - 01.03.1972, Page 14

Goðasteinn - 01.03.1972, Page 14
Höíðabrekka í Mýrdal Dalverjar og Höfðabrekkumenn Þáttur saminn af Sigfúsi M. Johnsen fyrrv. bæjarfógeta, stuðst við bandrit, eign sarna, eftir hinn sagnfróða Sktila Markússon beit. frá Hjörleifshöfða. Höfðabrekka í Mýrdal mun vera landnámsjörð, eftir því er bezt verður séð af Landnámu. Orðrétt segir þar um þetta efni: „Sigmundur Kleykir son Önundar bílds nam land milli Grímsár, er rann fyrir vestan Hjörleifshöfða að Kerlingardalsá, scm þá rann út í Kerlingarfjörðinn.“ Af þessu má sjá, að Sigmundur Kleykir hefir numið allt Kerlingardals- og Höfðabrekkuland, og er það dágóð spilda. Þótt ckki sé beint getið í Landnámu, hvar Sigmundur Kleykir reisti bæ sinn, verður að teljast líklegt, að það hafi verið á Höfðabrekku, þar sem gamli bærinn stóð. Á landnámsöld gekk fjörður inn að Skiphelli, sem var fast við túnið á gömlu Höfðabrekku, en þar voru skipin geymd í luktu nausti. Bærinn á Höfðabrekku var vel í sveit settur, víðáttumiklar engjar og heyskapur mjög mikill, eins og ávallt á Höfðabrekku, áður en Katla umturnaði öllu. Á Höfðabrekku hcfur því verið fýsilegt að búa á landnámstíð og óvíða betra. Fyrir Kötlugosið mikla 1660 lágu allar slægjur, tún og engjar fyrir framan bæinn, þar sem nú er eyðisandur. Fyrir norðaustan bæinn á Höfðabrekku var skógi- vaxinn háls, sem kallaður var Múlinn. Múlinn gekk úr Höfða- brekkufjalli austur á Sandinn að svonefndu Höfðaskarði, sem var næstum miðja vegu milli Höfðabrekku og Hjörleifshöfða. Norðan við Múlann rann hin gamla Múlakvísl, sem átti upptök sín í 12 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.