Goðasteinn - 01.03.1972, Síða 15
Höfðabrekkufjalli. Múlakvísl rann austur með Múlanum að áður-
nefndu Höfðaskarði, og þar í sjó fram. Múlinn eyddist algjörlega
í Kötlugosinu 1660, ásamt með bænum, túni og öllum cngjum. I
þessu hlaupi eyddist mikið skóglendi eftir því sem sagnir herma.
Erfitt er að tímasetja með fullri vissu byggingu Sigmundar
Kleykis á Höfðabrekku. Þó má fara nokkuð nærri um það, eftir
því sem Landnáma segir um landnám í Austfirðingafjórðungi.
Hún telur, að Austfirðir hafi byggzt fyrst á íslandi, en millum
Hornafjarðar og Reykjaness var seinast albyggt. Þar réði veður
og brim landtöku manna, fyrir hafnleysis sakir og öræfis. Af þessu
má sjá, að vestri hluti Austfirðingafjórðungs eða svæðið frá
Hornafirði og vestur að Jökulsá á Sólheimasandi, hefur sennilega
bvggzt seinni hluta landnámstíðar.
Menn telja, að landnám á Austfjörðum hefjist frá 890-920, en
þó hefur verið komin byggð í Mýrdalinn snemma á þessum tíma,
cftir því sem Landnáma segir. Þar stendur ennfremur: „Loðmund-
ur hinn gamli hét maður, enn annar Bjólfur fóstbróðir hans. Þeir
fóru til íslands af Vors og Þulunesi. Loðmundur var rammaukin
mjög og fjölkunnugur. Hann skaut fyrir borð öndvegissúlum sín-
um í hafi, og kvaðst þar byggja skyldu, er þær ræki í land. Enn
þeir fóstbræður tóku Austfjörðu og nam Loðmundur Loðmundar-
fjörð, og bjó þar þann vetur, þá frá hann tii öndvegissúlna sinna
fyrir sunnan land. Eftir það bar hann á skip öll föng sín. Hélt
hann síðan suður fyrir Horn og vestur með landi allt fyrir Hjör-
leifshöfða, og lenti nokkru vestar. Hann nam þar land, er súlurn-
ar höfðu komið, á milli Hafursár og Fúlalækjar, er nú heitir
Jökulsá á Sólheimasandi.“
Sést af þessari frásögn, að snemma hefur komið byggð í Mýr-
dalnum. Næst fyrir austan Hafursá nam sá maður land, er Björ.d
hét. Landnáma getur þess, að Björn þessi hafi átt í ófriði við
Loðmund, svo að auðsætt er, að þeir hafi búið samtímis í Mýrdal
cn líklegt er, að Loðmundur gamli hafi verið þar fyrsti landnáms-
maðurinn. Þriðji maðurinn, er Landnáma getur um, að hafi numið
land þar, hét Eysteinn sonur Þorsteins Drangakarls. Hann fór af
Hálogalandi til íslands og braut skip sitt og meiddist sjálfur í
viðum, en kerlingu cina rak af skipinu í Kerlingarfjörð. Hann
Godasteinn
13