Goðasteinn - 01.03.1972, Page 16
byggði í Fagradai, og hefur það verið í landnámi Reynis-Bjarnar.
Alsiða var, að þeir, er komu fyrr til landsins, seldu hinum, er
síðar komu, af landnámi sínu, ef þcir þóttust hafa svo mikið, að
þeir gætu látið af hendi. Líklegt er, að Eysteinn hafi numið land
frá Víkurá til Kerlingardalsár, því venja var hjá fornmönnum, að
láta vötn skipta löndum sínum. Fjórði maðurinn, er Landnáma
getur um, að land hafi numið í Mýrdal, var áðurnefndur Sig-
mundur Kleykir sonur Önundar Bílds í Flóa. Þar segir ennfremur:
Steinn hinn snjalli og Sigmundur son Sighvats rauða, áttu för af
Eyrum og komu að Sandhólaferju allir senn, Sigmundur og föru-
nautar Steins, og vildu hvorir fyrr fara yfir ána. Sló í bardaga
milli þeirra, er þeir Sigmundur stjökuðu húskörlum Steins frá, og
ráku þá frá skipinu. Kom Steinn þá að, og hjó Sigmund þegar
banahögg. LFm víg þetta urðu Baugssynir allir sekir burt úr
Hlíðinni, fór Gunnar í Gunnarsholt, cn Snjallsteinn að Snjallsteins-
höfða. Þorgerður dóttir Sigmundar eggjaði Önund bónda sinn, að
hefna föður síns. Fór Önundur með þrjá tigi manna í Snjall-
steinshöfða, og bar þar eld að húsum. Snjallsteinn gafst upp og
gekk út, og vógu þeir hann. Gunnar hefndi Snjallsteins og fór að
Önundi, sem verið hafði þó var um sig, og setið með fjölmenni
með þrjá tigu manna. Þeir fundust í Orrustudal og féll Önundur
þar, en hann hafði farið þangað við fjórða mann, að vitja hrossa
sinna. Þegar svnir Önundar, Sigmundur Kleykir og Eylífur, uxu
upp, sóttu þeir Mörð Gígju frænda sinn að eftirmáli. Kvað Mörð-
ur það óhægt um sekan mann, en Sigmundur varð sekur gerr um
víg Snjallsteins. Þeir fengu þó loks færi á Erni mági Gunnars og
vógu hann. Önundarsynir urðu héraðssekir úr Flóa. Mörður bað
til handa Eylífi Þorkötlu Ketilbjarnardóttur, en til handa Sig-
mundi bað hann Arngunnar Þorsteinsdóttur Drangakarls, og réðst
hann austur í sveit. Þessir fyrrtöldu landnámsmenn í Mýrdal hafa
verið uppi á sama tíma, frá því um 890 og fram yfir 900 og er
þá líklegt, að Höfðabrekka sé byggð á því tímabili, en landnám
Sigmundur scm áður segir milli Kerlingardalsár og Grímsár.
Um landnám í Álftaveri segir: „Gnúpur fór til íslands fyrir
vígasakir þeirra bræðra, og nam land milli Kúðafljóts og Eyjarár
og Álftaver allt, var þar þá vatn mikið og álftaveiðar á. Molda-
14
Goðasteinn