Goðasteinn - 01.03.1972, Qupperneq 17
Gnúpur scldi mörgum af landnámi sínu, og gerðist þar fjölbyggt,
áður jarðeldur rann þar ofan, en þá flýðu þeir vestur að Höfða-
brekku og gerðu þar tjaldbúðir, er heitir að Tjaldavelli. Vémund-
ur son Sigmundar Kleykis leyfði þeim þar eigi vist, fóru þcir þá
í Hrossagarð og gerðu sér skála þar.“ Af þessari frásög.n sést, að
Sigmundur hefur búið að Höfðabrekku, þegar Molda-Gnúpur flýði
undan jarðeldinum úr Álftaveri, því þegar hann var rekinn frá
Tjaldavöllum, sem nú heitir Búðardalur, hefur hann beðið Sig-
mund leyfis, að rnega byggja sér skála í Hrossagörðum. Þegar
þetta gerðist, hefur Vémundur sonur Sigmundar verið farinn að
búa í Keriingardal, og þá mun Búðardalurinn hafa legið undir
Kerlingardalinn með Höfðabrekkuhálsinum. Hefir Vémundur
verið fullvaxinn maður er þetta gerðist.
Þorvaldur Thoroddsen telur, að Kötlugosið 894 hafi verið jarð-
eidur sá, er Landnáma getur um og Moida-Gnúpur flýði undan.
Séra Jón Steingrímsson segir, að í þessu gosi hafi eyðilagzt allt
gróðurlendi frá Hafursey og austur að Hólmsá og upp undir jökul.
Gosið tók af byggð alla fyrir ofan Áiftaver, allt Dynskógahverfið,
en eigi mun þetta hlaup hafa tekið af Álftaverið sjálft.
Næst getur sagan um mann, er Þorleifur hét, kallaður jarlaskáld,
cr keypti land á Höfðabrekku og bjó þar. Þorleifur var yngsti
sonur Ásgeirs Rauðfeldar, er bjó á Brekku í Svarfaðardal á ofan-
verðum dögum Hákonar Hlaðajarls. Þórhildur móðir Þorleifs var
systir Miðfjarðar-Skeggja, og hjá honum var Þorleifur í fóstri tii
18 ára aldurs. Þorleifur jarlaskáld var hinn mesti atgerfismaður
um allar íþróttir og skáld gott, og er til af honum mikil saga, sem
eigi verður rakin hér. Kona hans er sögð hafa verið Auður Þórð-
ardóttir frá Skógum undir Eyjafjöllum, af ætt Þrasa gamla í
Skógum, og bjuggu þau hjón að Höfðabrekku. Ekki er getið barna
þcirra hjóna, en tímans vegna geta það hafa verið afkomcndur
þeirra, er sátu á Höfðabrekku, þegar FIosi Þórðarson á Svínafellí
gisti þar árið 1011 og var á leiðinni til þings eftir víg Höskuldar
Hvítanessgoða. Þá bjó á Höfðabrekku Þorgrímur Skrauti, Þor-
kelssonar hins Fagra. Enn í dag þykir sem Mýrdælingar kafni
ekki undir þessum íburðarmiklu nöfnum forfeðranna. Nú verður
allmikil eyða í ábúendatalið á þessari vildisjörð, verður ekki vit-
Goðasteinn
15