Goðasteinn - 01.03.1972, Side 20
konu hans, Eiríksdóttur var Einar, er sýslumaður var einnig í
Skaftafellssýslu. Eyjólfur lögmaður Einarsson er talinn hafa haft
lögsögu fram til 1495, en tók við 1480..
Einar Eyjólfsson kvæntist Hólmfríði Erlendsdóttur, er kölluð
var hin ríka, Erlendssonar sýslumanns í Rangárvallasýslu, móðir
Erlendar var Hallbera Sölmundardóttir í Teigi, sem sagt var, að
hafi erft eftir foreldra sína og aðra ættmenn allar bændaeignir í
Fljótshlíð. Erlendur eldri var Narfason, Vigfússonar, er kvæntur
var dóttur Ketils hirðstjóra Þorlákssonar. Erlendungar eða Kol-
beinsstaðamenn voru einhverjir mestu valdamenn sinnar tíðar hér
á landi. Bræður Hólmfríðar í Dal voru Þorvarður hirðstjóri og
lögmaður og Vigfús sýslumaður á Hiíðarenda og lögmaður. Móðir
þeirra (kona Erlendar) var Guðríður Þorvarðardóttir á Möðru-
völlum, Loptssonar hins ríka. Kona Þorvarðar var Margrét dóttir
Vigfúsar Hólm hirðstjóra.
Hólmfríður í Dal, sem kölluð var hin ríka, kemur allra kvenna
mest við skjöl. Hér gefst ekki rúm til að rekja það nánar. Hólm-
fríður í Dal hefir verið stórlát og ríkilát mjög, og virðist henni
hafa svipað í ýmsu til afasystur sinnar Ólafar ríku Loptsdóttur, og
víst er það, að hún lét ekki hlut sinn fyrir bræðrum sínum, er
miklir voru fyrir sér, né öðrum. Hún átti tíðum í málaferlum og
mál urðu miili hennar og bræðra hennar út af skiptum af Möðru-
vallaarfi. Hin miklu svokölluðu Möðruvallamál verða ekki rakin
hér. Um þau hefur Klemens Jónsson skrifað ýtarlega. Þess skal
aðeins getið, að dómur var kveðinn upp í lögréttu 1507 um af-
hendingu Möðruvallaarfs til systkinanna. Meðal hinna miklu jarð-
eigna, er þeim bættust nú, sem voru þó ærið miklar fyrir, voru
Engey, Laugarnes og Brautarholt og fleiri stóreignir sunnanlands.
Seinna voru Möðruvallamál tekin upp á ný 10 árum eftir dauða
Hólmfríðar og voru þá framannefndar jarðir og fleiri dæmdar af
ættingjum Hólmfríðar. Á hvern veg, sem eignaskiptin hafa að
öðru ieyti farið, þá er víst, að ýmsar af áðurnefndu jörðum voru
áfram í eign Erlendunga.
Einar Eyjólfsson var um tíma sýslumaður í Skaftafellssýslu og
gegndi lögmannscmbætti skamma stund. Hann hefir verið frið-
samur höfðingi og eigi hefir hann viljað beygja sig undir vald
18
Godaste'mn