Goðasteinn - 01.03.1972, Qupperneq 21
biskups íremur en Eyjólfur sonur hans eins og sést af bréflegum
samningi, sem gjörður var í millum Hólmfríðar og Ögmundar
Pálssonar síðar biskups í uinboði Stefáns biskups eftir lát Einars
varðandi eignarjörð þeirra hjóna - Auðsholt. Einar lézt 1515.
Mikiil auður hefir verið í búi þeirra Einars og Hólmfríðar
í Dal og sést það af fjárskiptabréfi milli Hólmfríðar húsfreyju
og Eyjólfs sonar hennar og systkina hans. Fjárskiptabréfið er enn-
þá til. Var Hólmfríður málakona í garð Einars. Hálfur annar
tugur jarða hefir fallið í hennar hlut, þar á meðal stórjarðir eins
og Brautarholt á Kjalarnesi og Sandgerði og hálf jörðin Holt á
Síðu. Er það of langt mál að lýsa þessu skiptabréfi nánar. Höfuð-
bólunum Stóradal og Höfðabrekku héldu Eyjólfur og systkini
hans auk fjölda annarra jarða. Sennilegt er, að Einar og Hólm-
fríður í Dal hafi haft bú á Höfðabrekku og jafnvel setið þar öðru
hvoru.
Hólmfríður ríka giftist eftir lát manns síns Jóni Hallssyni, er
talinn er hafa verið sveinn Erlendar sýslumanns Erlendssonar.
Jón varð sýslumaður í Rangárvallasýslu 1522. Hann hefir látizt
skömmu eftir 1537. Hann var talinn skáld gott. Jón og Hólmfríður
bjuggu í Eyvindarmála og Næfurholti; þá jörð gaf Hólmfríður
Jóni.
Sem dæmi um hið mikla álit og traust, er borið var til Hólm-
íríðar Erlendsdóttur, er kunn var sem mesti kvenskörungur sinnar
tíðar, var að hún var skipuð fjárhaldsmaður barna Vigfúsar sýslu-
manns bróður síns af síðara hjónabandi, er andaðist erlendis 1521
eða 1522. Hún vildi losna við umboðið, en tylftardómur, dæmdur
á Alþingi 1522, þóttist ekki geta leyst hana frá umboðinu. Páll
Vigfússon sýslumaður og Anna á Stóruborg voru börn Vigfúsar
af fyrra hjónabandi. Systkinin Vigfús sýslumaður Erlendsson og
Hólmfríður systir hans, sem bæði voru ráðrík og skapstór, deildu
svo mjög, að til vopnaskipta kom milli manna þeirra. Deilur voru
og uppi milli Hólmfríðar og Eyjólfs jungherra, sonar hennar, en
Ögmundur biskup átti þátt í því að þau sættust og einnig sætti
hann þau Hólmfríði og Pál Vigfússon lögmann, bróðurson hennar,
er áttu í deilum.
Hér verður ekki gerð nánari grein fyrir þeim dómum og bréfa-
Godasteim?
19