Goðasteinn - 01.03.1972, Síða 23
Eyjólfur Einarsson yngri lifði Helgu konu sína og áttu þau
fjöida barna, en mörg þeirra dóu ung. Um dánarár hans er eigi
kunnugt. Verður hér farið fljótt yfir sögu.
Einar sýslumaður, sonur þeirra hjóna, mun hafa búið á Höfða-
brekku um hríð. Hann var kvæntur Vilborgu Bjarnadóttur sýslu-
manns, Erlcndssonar. Annar sonur þeirra, Eiríkur, bjó lengi í
Eyvindarmúla, er óvíst, hvort hann hefir nokkurn tíma búið á
Höfðabrekku. Ættmenn hans hafa búið fram að þessu í Eyvindar-
rnúla eða um 400 ár.
Eiríkur sótti sér konu norður í land, hið göfugasta kvonfang,
Ölöfu Nikulásdóttur, klausturhaldara á Munkaþverá, Þorsteins-
sonar sýslumanns, Finnbogasonar lögmanns.
Magnús Eiríksson bjó á Höfðabrekku og var kvæntur Kristínu
Árnadóttur prófasts í Holti, Gíslasonar biskups, Jónssonar. Dr.
Jón Þorkelsson þjóðskjalavörður hyggur, að handritið af Sæmund-
ar Eddu, sem síðar var nefnd Konungsbók, hafi verið í eigu þessa
fólks og nafnið Magnús Eiríksson, sem stendur á handritinu sé
nafn Magnúsar Eiríkssonar á Höfðabrekku, enda er nafnið skrif-
að með 17. aldar hendi. Dr. Jón telur, að Brynjólfur biskup, scm
var mikill vinur Höfðabrekkufólksins, hafi fengið Konungsbók á
Höfðabrekku og þaðan sé hún komin. Fáir munu verða til að
véfengja sannleiksgildi ályktunar þessa hálærða fræðimanns, for-
seta Sögufélagsins. (Sjá ártíðaskrá Skinnastaða, ísl. ártíðarskrár,
útg. af hinu ísl. Bókm.fél.. Khöfn 1893-96). Sem kunnugt er, af-
henti Brynjólfur biskup handritið Friðriki þriðja konungi, sem
átti síðan meir en 300 ára dvöl í konunglcgu bókhlöðunni í Kaup-
mannahöfn. Fornhandritin, þessar miklu gersemar, stoðir norrænn-
ar menningar, voru í eigu auðugustu ættanna á íslandi, enda var
öðrum ekki kleyft að kosta til að láta rita þau. Flateyjarbók áttu
Auðkýlingar, afkomendur Kolbeins jarls. Sæmundar Edda (Codex
reglus) hefur sennilega verið i eigu Höfðabrekkufólks frá dögum
Eyjóifs í Dal en upphaflega komin frá Oddaverjum. Eyjólfur lög-
maður var, scm fyrr getur, af ætt Oddaverja og getur nafnið verið
komið þaðan, en einn sonur Sæmundar fróða hét Eyjólfur. Synir
Magnúsar Eiríkssonar á Höfðabrekku voru Vigfús og Magnús,
en þeir bjuggu báðir á Höfðabrekku.
Goðastc'nm
21