Goðasteinn - 01.03.1972, Side 30

Goðasteinn - 01.03.1972, Side 30
Yfirlitsmynd yfir Kársstaði. Sér á Landbrotsvötn og Syngjanda. hliðar við eldstæði, og á honum skjól, sem bcindi reyknum út. Þurfti og að snúa því eftir vindátt svo ekki slægi niður í stromp- inn og eldhúsið fvlltist af reyk. I eldhúsinu var eldiviður geymdui:, en það var raunar enginn viður heldur nær eingöngu tað. Þar var kjöt og grjúpán reykt og kartöflur og rófur geymdar í gryfju í gólfinu. Innangengt var í eldhúsið úr bæjardyrunum, sem voru næst í húsaröðinni. Þar voru stutt göng á milli. Bæjardyrnar, en svo hét það hús allt, voru mun stærri en eldhúsið. Þær voru með standþili úr tré niður úr. Um þilið þvert var hengd ,,festi“ úr sauðarvölum, sem borað hafði verið í gegnum og þræddar upp á band, mun eldri bróðir minn Jón (f 1929) hafa útbúið þetta skraut, sem ekki er annað eftir af en ein vala, sem er í mínum fórum. Bæjardyrnar voru ,,jarðarhús“, þ. e. fylgdu jörðinni, sem eign jarðeiganda. Þó mun hann ekki hafa verið skyldur að halda þeim við. í bæjardyrunum voru geymd matvæli, einkum súrt slátur og mjöl í tunnum. Bekkur var þar á eina hlið til þess að vinna við, taka til mjöl o. s. frv. Ekkert þessara húsa, sem nú hafa verið talin, voru þiljuð að innan og öll voru þau með moldargólfi, veggjum hlöðnum úr hraungrjóti, og á þakinu aðeins torf. Geta má því nærri, að þetta lak í rigningum og þurfti ekki skaftfellskar stórrigningar til. 28 Goðaste'tnn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.