Goðasteinn - 01.03.1972, Side 34

Goðasteinn - 01.03.1972, Side 34
sér Guðjón, að eitthvað er að koma sunnan ána og er að smá- færast að aftasta hestinum, en þá var báturinn að koma að landi. Ekki sakaði hestinn, og þetta hvarf um svipað leyti og báturinn lenti við austurbakkann. Lýsingu Guðjóns á þessu bar heim við það, sem ég hafði séð. Meðal þeirra, sem ferjaðir voru í þetta sinn, var Tyrfingur Björnsson þá bóndi á Bryggjum í Austur-Landeyj- um, síðar bóndi og oddviti í Hávarðarkoti í Djúpárhreppi, mikill heiðurs- og gæðamaður. Hafði hann sagt við þetta tækifæri, að nú hefði hann fréttir að færa. Einu sinni var það á þessu tímabili, er tvær konur voru að skola þvott austur við á, dáiítið sunnar, að þær sjá eitthvað ein- kennilegt vera að lóna dálitla stund í aðalálnum. Um svipað leyti kom ég að ferjustaðnum til að ferja Margréti Guðlaugsdóttur frá Fljótshólum yfir ána. í bakaleið lenti ég með bátinn sunnar og hitti konurnar, þegar ég dró bátinn upp með bakkanum. Voru þær alveg hissa, að við skyldum þora að fara út á ána, en við höfðum þá ekkert séð. Einu sinni var faðir minn, jón Þórðarson, að ferja Björn Björns- son frá Búð yfir ána. Voru þeir komnir yfir ána og drógu bátinn upp með vestri bakkanum. Sáu þeir þá eitthvað brúnleitt og kúpumyndað koma upp í ánni. Nokkuð var það fyrirferðamikið. Það fór upp eftir ánni á móts við þá, lónaði þar dálítinn tíma og hvarf svo. Þcim var hulið mál, hvað þetta hefði verið. Skoðun mín er, að þarna hafi verið á ferð fiskur úr sjó. Björgvin heitinn sýslumaður hafði sagt, að þetta hefðu verið móflúðir, en móti því mælir, að þetta fór móti straumi. Sverja þyrði ég, að þetta væru lifandi verur, hvað svo sem það var. UNDARLEG SÝN Það var um sumartíma um 1914-1916, að ég var að leita að kvíám austur á Hólsbökkum. Ytri-Hóll í Landeyjum var þá í eyði, en nokkrir Austur-Þykkvbæingar höfðu hann til afnota. Ég var ríðandi, og hesturinn hét Skuggi, þægur og lipur klár, sem ég hélt upp á. Ég var kominn að vatninu sunnan við Valalæk, í norðaustur af efri Hólsbænum, sem nú er (1970) ekki iangt frá Hvannavatni. 32 Godasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.