Goðasteinn - 01.03.1972, Page 42
ir minn, Jón Þórðarson. Slagurinn var látinn standa suður í gljá,
suður fyrir Eyrartögl, Þegar þangað kom, tóku við grynningar.
Við fengum 75 stórsilunga, sem höfðu hopað undan netunum, og
það er sú fallegasta veiði, sem ég hef séð.
Ofsahæð var í Hólsá 6. marz 1969. Hún flæddi þá yfir bakka
og garða, þó sérstaklega hjá Fjarkastokki. Það rétt sást á efstu
puntstrá í Útgarðshólma og hólmanum þar inn af. Vatnsflæðið
var á stóru landsvæði í Þykkvabæ. Öfært var yfir veginn niður að
Miðkoti í nokkra klukkutíma. Flæðið náði austur á Tobbakots-
tún, og nærri lá, að rynni yfir veginn hjá Vatnskoti. Jakastífla í
ánni mun hafa valdið þessu.
VIÐ VÖTNIN STRÖNG
Baráttan við vötnin varð Þykkbæingum löng og ströng. Hér
skal aðeins sagt frá síðasta mikla átakinu og þcim sigri, er vannst.
Stórabrú er miðja vega milli Útgarðs og Fjarkastokks. Sér þar
enn fyrir garði og skoru í árbakkanum. Þar hefur verið áll, sem
hlaðið var í. Keldnaósar, tveir, eru fyrir innan Borgir. Hlaðið
hcfur verið í þá báða. Blesa eða Blesuós er mitt á milli Fjarka-
stokks og Keldnaóss. Þar hefur verið hlaðið í. Þetta er nú á
móts við skák cða tún frá Eyrartúni í Þykkvabæ.
Fjarkastokkur var mikið vatnsfall á sínum tíma, stundum á
sund á hesti, áður en hlaðið var í hann snemma á þessari öld.
Þar var unnið við frumstæð skilyrði, sniddan borin á bakinu eða
í fanginu af körlum, konum og unglingum, ófrískar konur skárust
þar jafnvel ekki úr leik. Framantalin örnefni eru öll vestanmegin
Hólsár.
Djúpós var langmesta vatnsfallið. í hann var hlaðið 1923. Um
vorið var ágæt tíð og byrjað snemma á því að hlaða í farvegi
austur í Hólsá, þá var þar allt þurrt, en Landeyinga langaði ekki
að fá vatnið til sín. Síðan var farið í Valalæk og hann tepptur,
og það af Þykkbæingum, og eins var það suður í á. Líka varð
að styrkja að vestan hjá Fjarkastokk. Sniddan var sótt austur í
Stararhólma, allt var þá þurrt. Þetta var gert, áður en hlaðið
var í Valalækinn. Síðan var farið í Djúpós, og sigur vannst fyrir
slátt. Sniddan var keyrð á hestvögnum og stíflutrén rekin niður
40
Goðastemn