Goðasteinn - 01.03.1972, Síða 46
Fyrst bjuggu þau í Stóra-Klofa í nokkur ár. Þaðan urðu þau að
flýja vegna sandágangs og fluttu þá bæinn þangað, sem nú er,
rétt eftir 1870, en 1882, fellisárið mikla, var Stóri-Klofi ekki
byggilcgur um sinn. Höskuldur byggði þá nýbýli skammt norð-
vestan við Mörk, en 1883 tók hann Skarðsselið, sem var í eyði
árið áður og húsalaust að mestu. Þaðan flutti hann 1896 undan
sandágangi og vestur að Þjórsá. Finnbogi sonur hans tók þá við
búinu, en 1898 flutti fjölskyldan að Skarfanesi. Þar bjó Finnbogi
stóru búi svo lengi sem jörðin hélzt í byggð, enda dugnaðar- og
cljumaður og hagsýnn svo af bar. Börn Finnboga og konu hans
voru 10, sem upp komust, öll ágætis fólk og mjög vel gefin, og
kostaði Finnbogi mörg þeirra til mennta.
Bergsteinn bróðir Jóns Hreiðarssonar byrjaði búskap á Yrjum
á Landi 1838 og átti fyrir konu Önnu Jónsdóttur. Eitt af börn-
urn þeirra var Hallbera amma Haralds Guðnasonar bókavarðar í
Vestmannaeyjum. Hreiðar bróðir Jóns er bóndi í Hvammi 1844,
og mun hann hafa verið þeirra yngstur. Kona Hreiðars hét Arndís
Jónsdóttir, ættuð úr Meðallandi. Haustið 1848 fóru þeir bræður
Bergsteinn og Hreiðar út á Eyrarbakka, báðir gangandi með rauð-
skjótta hryssu í taumi undir einhvern forða til vetrarins. Þeir óðu
Þjórsá á Evjarvaði, sem áður hét Holtsvað, og gekk vel, enda
höfðu báðir verið þrekmenni og með sterkustu mönnum. Til þeirra
hafði sést af bæjum fyrir utan Þjórsá, og á heimleið sást einnig
til þeirra, og gekk allt vel austur yfir Árnes, sem er eyja í Þjórsá
og tilhevrir Árnessýslu enn í dag, enda ber sýslan nafn af henni.
Þeir bræður áttu þá ófarið yfir Árneskvísl, sem er h'tið vatn
samanborið við aðalána vestan eyjarinnar.
Á leið þeirra austur yfir Árnesið var að bregða birtu, en veður
var gott. Morguninn eftir sást hross undir böggum í Árnesinu.
Farið var að gæta að, hverju þetta sæti. Þarna var þá hryssan,
sundvot, en til þeirra bræðra sást ekki. Gizkað var á, að þeir
hefðu lagt í Þjórsá neðan við Búðafoss, haldið að það væri Árnes-
kvíslin og drukknað þar.
Jón Hreiðarsson bróðir þeirra fullyrti, að þá hefði aldrei rekið,
en hinsvegar segir Guðni Jónsson prófessor í Sagnaþáttum sínum,
V. bindi, bls. 130-131, að lík Hreiðars hafi fundizt við Traust-
44
Goðasteinn