Goðasteinn - 01.03.1972, Blaðsíða 50
gerðir. Þessa skó geymdi Jón í pappakassa hjá sparifötunum sínum
og bað um, að þeir yrðu látnir í kistuna með sér önduðum og
var svo gert.
Einhverju sinni var Jón að ræða raunir sínar við móður mína
og sagðist hafa verið svo hryggur, þegar Sigríður var grafin, að
þeir, sem stóðu yfir gröfinni með honum, héldu, að hann myndi
detta ofan í hana. Einhver nærstaddur fór til hans og studdi hann.
Við bræður vorum nærstaddir og sögðum af barnaskap okkar:
,,Þú hcfir séð svona mikið eftir henni.“ Jón svaraði: ,,Já, ég
þóttist vita, að öll mín lífshamingja færi með henni í gröfina
enda varð sú raunin.“
Gísli Jónsson bjó í Skarðseli eftir Jón. Hann fiuttist frá Stóru-
völlum í Bárðardal að Haga í Gnúpverjahreppi rneð Ásmundi
Jónssyni. Gísli var að sögn bráðvel gefinn og skáldmæltur. Hann
mun hafa dvalið eitt ár í Skarðscli, áður en hann tók við jörðinni.
Hann bjó eitt ár í Skarðscli. Jón Hreiðarsson mun þá hafa verið
húsmaður hjá honum. Þetta ár komust á gang bændavísur, sem
cignaðar voru Gísla og Jóni. Ég ætla, að flestir eða allir bændur
í Skarðssókn hafi fengið þar vísu, og er eitthvert hrafl enn til úr
þeim, annaðhvort á blöðum eða í minni manna. Vísan um Gísla
mun ort af Jóni Hreiðarssyni:
Gísli tryggur vini við,
valinn yggur stála,
gætinn, hygginn góðmennið
gjörir byggja Skarðselið.
Jón fór frá Skarðseli að Hvammi til Gunnars Árnasonar, sem
þar bjó lengi (í norðurbæ), og dvaldi Jón hjá honum þar til hann
fór að Skarði, sem fyrr getur, til Jóns bróður Gunnars. Að Skarð-
seli fór eftir Gísla Erlendur Bjarnason og Katrín Þórðardóttir frá
Löngumýri á Skeiðum.
Erlendur í Skarðseli reri út, sem kallað var, á vetrarvertíðum,
meðan hann bjó í Seli, svo sem flestir bændur gerðu þá. Katrín
sá um heimilið á meðan. Kom þá stundum fyrir, að Jón Hreiðars-
son brá sér á fornar stöðvar og heimsótti Katrínu. Hafði hún
minnzt þess löngu síðar, hve henni hefði þótt Jón kærkominn
gestur. Katrín var mjög vel greind, glaðsinna og fróðleiksfús og
48
Goðasteinn