Goðasteinn - 01.03.1972, Side 53

Goðasteinn - 01.03.1972, Side 53
Árnakundinn ég veit Jón jafnan lund í glaðan, lipur stundar söngva són og söðla hundum ríða um frón. Lízt mér téður laufagrér, líka um kveð, að man ég þér, þá koddan léðir mjúkan mér, af mildu geði þakka ber. Árið 1892 eignuðust foreldrar mínir sveinbarn, sem hlaut nafnið Matthías. Barnið var talið efnilegt svo af bar. Þegar Matthías fór að ganga með, sem kallað var, var hans fyrsta ganga að hnjám Jóns Hreiðarssonar og fékk þar góðar viðtökur að eigi gleymdust meðan báðir lifðu. Segin saga var, að Matthías litli fór jafnan til Jóns Hreiðarssonar, er búið var að klæða hann að morgni, eins og til að sækja þangað andlegan dagsforða og ekki án árangurs. Hann var altalandi rúmlega þriggja ára og kunni þá bæði vers og vísur og var talið, að hann hefði þá þroska sem fjögra ára barn. Nú leið tíminn og í ágúst 1894 lagðist móðir okkar bana- leguna, þá búin að vera heilsuveil á annað ár. Skömmu síðar fór Jón Hreiðarsson að Hellum, en siðast í september veiktist Matthías að sögn læknis af heilabólgu, og 4. október andaðist hann kl. 4 að morgni. Skömmu eftir fótaferð kom Jón Hreiðarsson dapur mjög, flettir ofan af ásjónu drengsins, las eitthvað í hljóði og grét mikið. Síðan fer hann með tvö erindi eða vísur það hátt, að ég heyrði þær vel, því ég var einn inni hjá móður minni þá stundina. Þær eru á þessa leið: Er mín heitust ósk og þrá að lífsdegi horfnum, að liðinn megi líka ef má liggja í gröf þér næstur hjá. Goðastebm 51

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.