Goðasteinn - 01.03.1972, Page 62
Oddur Oddsson, Heiði:
Glettur
FaðÍL' minn, Oddutr Pétursson á Heiði, og Einar Jónsson alþing-
ismaður á Geldingalæk voru lengi nágrannar og mestu vinir. Báðir
voru þeir glaðlyndir og gamansamir og áttu smáglettur hvor við
annan í atvikum og hnyttilcgum tilsvörum. Ég ætla að hripa hér
upp fát't eitt af þv’í, cr þeim fór á milli og ég man enn glöggt,
máske mér einum til gamans.
Það var citt sinn á þorra, að Einar sást koma heim túnið á
Heiði í norðan skafbyl og miklu frosti. Oddur fór brátt til dyra
að táka á móti Einari og segir við mig og Böðvar heitinn upp-
eldisbróðir minn og lætur leggjá í eyrun á Einari: „Blessaðir dreng-
ir, teymið þið nú hestinn hans Einars í varpann, þar sem hann er
beztur, fyrst hann var svo vænn að koma núna í þessu veðri.“
Þá var það um vor, að allir á Heiði voru inni að drekka kaffi.
Sást Einar þá koma gangandi heim túnið. Oddur tekur bolla,
fyllir af kaffi og fer á móti Einari út á kálfgarðsvegg, er var fram-
undan bænum. Þar býður hann Einari kaffið og segist ætla að stytta
honum ofurlítið gönguna. Einar tók á móti kaffinu með þökk og
drakk, cn árciðanlega fékk hann líka svikalausan sopa í bænum.
I þriðja sinn sást Einar koma gangandi heim túnið. Fer Oddur
þá fram, lokar bæjardyrahurðinni og stendur við hana að innan.
Heimamenn, sem inni voru, opnuðu þá baðstofugluggann og létu
Einar koma þar inn. Vissi Oddur ekki fyrr til, en hann kom hon-
um að óvörum fram bæjardyrnar og bauðst til að hjálpa honum
til að opna.
Einar var staddur á Heiði, og var verið að búa honum kaffi
frammi við. Búið var að baka pönnukökur, sem átti að bera með
kaffinu. Fer Oddur nú fram, tekur nál og enda og þræðir allar
pönnukökurnar saman svo ekki ber á. Þegar Einar fer svo að
drekka og ætlar að fá sér pönnuköku, þá fylgjast þær allar að.
Oddur var nærstaddur og sagði glettnislega: ,,Það er nú ekki
siður, Einar minn, þó eitthvað sé borið með kaffi, að gesturinn
taki það allt til sín.“
60
Goðasieinn