Goðasteinn - 01.03.1972, Qupperneq 65

Goðasteinn - 01.03.1972, Qupperneq 65
svokallað Berghillusig, alveg í lóð og um 30 faðma hátt. Endaði það á hillu, sem Berghilla heitir. Þar voru venjulega ekki færri en 30 fýlar í röð meðfram berginu. Þeir voru komnir að því að fljúga og létu lýsisgusurnar ganga að mér, svo sem venja er fýlsins í nauðvörn. Ég gerði þeim fljót skil á venjulegan hátt. Þegar hillan var hroðin, kallaði ég til undirsetumanna að hala. Þeir tóku rösk- lega í, og ég halaði mig á leynivaðnum. Var þetta hin mesta þrek- raun, en upp komst ég í einni lotu. Nú var mæðinni kastað og þorstanum svalað; mann þyrsti í sólarhitanum við þessi erfiðu störf. Venja var að vera ávallt vel birgur að drykk, þá er farið var til siga. Við færðum okkur til næsta sigs, og hófst þar ný þrekraun. Þetta gekk allan daginn, unz lokið var við að hreinsa Höfuðið, sem var ekki fyrr en undir kvöld. Seig ég allan daginn, en þeir félagar sátu undir. Strákar komu um miðjan dag að færa okkur mat og tína saman fugl neðan undir sem venja var. Um kvöldið var skipt milli leigutaka, þegar búið var að koma fýlnum sam- an í einn stað. Var um 100 í hlut. Úr Nyrðra-Grafarhöfði hafa því verið þá kringum 200 veiddir fýlar, en fyrr meir var fýla- tekja þar meiri. Daginn eftir var sigið í Syðra-Grafarhöfuð. Það var ekki eins þverhnípt og það nyðra. Sig voru því ekki eins hörð þar en víða eins löng. Þar eru Gvendarhillur, efri og neðri. Eru þær langar og grasigrónar. Fyrrum var þar mikil fýlabyggð, en síðar gekk sauðfé í hillurnar og hætti fýllinn þá að verpa þar. Við hreinsuðum Syðra-Grafarhöfuð á einum degi, og var svipað í hlut úr því og hinu nyrðra. Voru nú eftir Miðaftansbrýr, og tókum við þær þriðja daginn. Brýrnar ná allt frá Syðra-Grafarhöfði og fram að Klapparhaus. Þar tekur Útfjallið við. Þar lá vegur niður í Vík í mörgum snið- um, vestan vfir Revnisfjall úr Reynishverfi. Var þar fjölfarin leið fyrrum. Sig í Brúnunum voru miklu styttri en í Höfðunum og eftirtekja minni, víða stutt snött, sem svo var kallað. Tekinn var hver fýll, sem til náðist eða gjörhrcinsað. Tók það sinn tíma en erfiði ekki eins mikið og við löngu sigin. Að verki loknu var afla skipt og Godasteinn 63
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Goðasteinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.