Goðasteinn - 01.03.1972, Page 67
Skarphéðinn Gislason
jrá Vagnsstöðum:
Fiskiróður
fyrir einni
öld
Á góuþrælinn 1871 var víst logn hér í Suðursveit og sæmilegt
sjóveður að mönnum fannst. Bjuggu allmargir menn sig þá til sjó-
róðrar frá Bjarnahraunssandi. Þá og síðar voru aðeins stundaðar
handfæraveiðar hér frá sandinum. Róið var þá oftast þetta þrem-
ur og fjórum skipum héðan úr sveitinni.
Skipshöfn Halldórs Jakobssonar bónda í Hestgerði bjó sig í
snatri til róðrar. Eftir stutta stund var komið út á fiskimið, sem
var vanalega á 10-20 faðma dýpi. Þar dró einn hásetiun þorsk
og hafði rétt innbyrt hann, þegar Halldór formaður kallar: „Hafið
þið færin inn, piltar!“ Þá kallar sá, er fiskinn dró: „Nei! rétt út,
einn enn!“ Formaður kallaði á móti: „Nei, nei!“ Hlýddu þá allir,
hönkuðu upp færi sín í flýti og tóku rösklega til ára sinna, áleiðis
til lands.
Tveir formenn aðrir komu til róðrar og um hálf skipshöfn hvors
þeirra slógu í félag, tóku annað skip sitt og settu fram tii sjávar.
Þeir skinnklæddust og studdu skipið til róðrar. Þegar formanni
sýndist komið lag, kallaði hann eins og vánt var: „Tökum á og
Goðasteinn
65