Goðasteinn - 01.03.1972, Blaðsíða 81
Sex árum síðar skeði það, að Árni bóndi Finnbogason á Galta-
læk fór niður um ís eða snjóskafl rétt á móts við bæ sinn, var
hann að reyna ísspöng fyrir hesta vermanna, sem komast þurftu á
bæina austan árinnar. Þetta skeði á góu 1849.
Heimildarm. Árni Hannesson i Hrólfsstaðahelli.
Á öðrum stað í Sagnaþáttum Guðna Jónssonar, segir Árni
Hannesson frá því að unglingsstúlka frá Haukadal á Rangárvöll-
um, Guðrún Kolbeinsdóttir, var ásamt systur sinni að safna kal-
við til eldneytis í Hraunteig. Dettur henni þá í hug að bregða sér
yfir ána að Galtalæk og þiggja góðgerðir hjá gæðakonu, Margréti,
konu Árna Finnbogasonar, en áin reyndist dýpri en stúlkan
hugði og þróttur hennar kannski ekki mikill, nema stúlkan
drukknaði í ánni.
Fjórði maðurinn scm Árni nefnir að drukknað hafi í Rangá,
var Magnea Auðunsdóttir unglingsstúlka frá Svínhaga. Var hún
send frá Svínhaga að Húsagarði í Landsveit, sem er nokkru neðar
með ánni vestanmegin.
Var stúlkan ríðandi og sást hrossið frá Húsagarði, en stúlkan
hafði hrokkið af þvt og drukknað í ánni. Þetta skeði sunnudag-
inn 17. maí 1925.
Hér má enn bæta við upptalningu drukknaðra í Rangá Þór-
unni Guðmundsdóttur frá Snjallsteinshöfðahjáleigu, er hvarf þar
að heiman 10. okt. 1890. Bein hennar fundust að ári liðnu suður
undir Þykkvabæ, nærri sandorpin.
Hafði Rangá borið þau fram í Þverá og hún síðan kastað þeim
yfir í Djúpós og þar fjarað undan þeim á grynningum. Talið var
vafalítið að stúlkan hefði kastað sér í Rangá. Um ástæðu fyrir
því tiltæki vissi fólk ekki, stúlkan sögð mjög viðkunnanleg, jafnvel
,,glaðsinna“. Eftir hvarf Þróunnar fór af stað sá kvittur, að
kannski hefði högum hcnnar verið svo háttað, að hún hefði ekki
treyst sér til að horfast í augu við það, sem framundan var. Frá
hvarfi Þórunnar er nánar sagt í Sagnaþáttum Guðna Jónssonar
V. og VII. h.
Er þá eftir að nafna þrjá Rangvellinga og vinnupilt frá Bjólu,
sem allir drukknuðu í Rangá á þessari öld.
Fyrst er að nefna Boga Þórðarson bónda í Varmadal, sem
Goðasteinn
79