Goðasteinn - 01.03.1972, Page 86
alli tíð í prentuðu máli er að finna í fslenzku fornbréfasafni I-XV.
Heimildir, sem taka við af því, eru m. a. visitasíur biskupa í
Skálholti og á Hólum, úttektir jarða, uppskriftir og skipti dánar-
búa og uppboðsbækur. Ekki verður íslenzk orðabók fullgerð án
orðtöku þessara heimilda og ekki verður íslenzk þjóðháttasaga
samin án þeirra.
I Fornbréfasafni koma hvað eftir annað fyrir orð, sem varða
skyrgerð. Við finnum þar ílátin, sem skyr varð til í, grindina,
sem það var síað á og sáinn eða kerið, sem það var geymt í til
síðari nota. Orðið seljabytta, sem frarn kemur um 1400, bendir
á skyrbyttuna, sem slcyr var flutt í frá seli, og tengist flutningi
skyrs á torfkrókum eða barkrókum heim frá seli, en sú flutnings-
aðferð var tíðkuð í Fljótshlíð tii loka 19. aldar við flutning skyrs
til bæja.
Algengasta orð um skvrkyrnu eða hleypiskyrnu í Fornbréfa-
safni er uppgjörðarkerald, ieitt af sögninni að gera upp og nafn-
orðinu uppgerð, en svo nefndist hver einstök skyrgerð í mála-
verkum. Fróðlegt er að sjá í heimildum fjöida þessara keralda
á einstökum stórbúum, en hann gat orðið nær þremur tugum.
Nú mun ísland allt ekki eiga þá tölu tvöfalda í þessum gagn-
legu búshlutum rniðað við gamla gerð, hvað þá meir.
I skyrkyrnum, skyrkerum og sáum er Skógasafn vel hlutgengt
miðað við önnur söfn landsins, og er þó ekkert þeirra íláta gert
í mesta framleiðsluhéraði landsins á sviði stafaíláta, Ströndum
norður, enda langt þangað að sækja fyrir íbúa suðurstranda.
Smiðirnir rangæsku og skaftfellsku lifa hér í verkum sínum og
Iofa sig í verkum sínum.
Skógasafn á um einn tug uppgjörðarkeralda, eða skyrkyrna.
Skálakyrnan er þar ein sér að gerð. Allar hinar eiga sammerkt að
því að víkka ögn frá botni til ops og þær yngstu allra mest. Tvær
trégirtar skyrkyrnur úr Vestur-Landeyjum eru smíðaðar af lang-
ömmubróður mínum, Ólafi Einarssyni í Gerðum um 1850. Frá
Vindási á Landi er komin trégirt skyrkyrna, væntanlega smíðuð
af Jóni Þorsteinssyni bónda þar, nafnfrægum smið, föður
Kristófers á Vindási, sem tók hagieikinn í arf. Frá vesturbænum
í Drangshlíð undir Eyjafjöllum er mikil og vel smíðuð skyrkyrna,
84 Goðasteinn
/