Goðasteinn - 01.03.1972, Page 90

Goðasteinn - 01.03.1972, Page 90
Á botni skyrkyrnunnar sat jafnan svolítil skyrkúla, sem alltaf var haldið sér. Hún gekk undir ýmsum nöfnum eftir landshlut- um. Algengt nafn á henni á Suðurlandi var þéljakúla eða gráða- kúla. Austfirðingar nefndu þetta skyrrass. Hjá Hornfirðingum þekkist nafnið úrsíll. Þéljakúlan var venjulega sett í hundsdallinn eða kálfadallinn. Hirðing skyrkyrnu varð að vera í góðu lagi ekki síður en annarra mjólkuríláta. Hún var fyrst skoluð og síðan þvegin vand- lega, og í dag vitnar máð og slitið tré hennar um melþvöguna, sem notuð var við þvottinn. f góðu veðri var hún sett um stund móti sólu eða vindi upp á gluggadekk eða annars staðar utan við hús, nógu lengi til þess, að yzta borð viðarins þornaði. Og þá er líklega nóg komið af fróðleik um gömlu Skálakyrnuna og starf hennar, því þetta átti aldrei að vera allur fróðleikur um það, hvernig mjólk var komið í mat. ANDSVAR Guðmundur frá Nýjabæ í Meðallandi, auknefndur kíkir, gisti á bæ i Meðallandi. Hann ræddi við heimilisfólkið í baðstofunni, er allir voru lagztir til hvíldar, og beindi einkum máli sínu til hjónanna, er hann mat mikils. Um það bil, er þeim hvarf minni, beindi Guðmundur til þeirra þessari spurningu: „Var hún mikil kona hún Rannveig á Leiðvelli?" Bið varð á svari, en gamall maður hljóp í skarð hjóna og svaraði: ,,Ég veit ekki, hvort hún var mikil kona, en hún var góð kona.“ Guðmundi þótti svarið koma úr skökkum stað og svaraði snöggsinnis: ,,Ég var ekki að tala við þig, ekkert veizt þú! Ég var að tala við hjónin hérna, þau cru vitur!“ 88 Goðasteimi

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.