Goðasteinn - 01.03.1973, Side 12
leigu í Hjaltastaðaþinghá. Foreldrar hans voru Sigurður Jónsson
og Kristín María Sigfúsdóttir prests að Ási í Fellum, Guðmunds-
sonar. En faðir Sigurðar var Jón prestur Brynjólfsson á Eiðum.
Kona hans var Ingibjörg Sigurðardóttir, Eyjólfssonar. Móðir
hennar Bóel dóttir Jens Víums sýslumanns í Múlaþingi. Á lát
Jóns prests Brynjólfssonar minnist Espólín í næst síðustu árbók-
ardeild sinni þannig: ,,Þá andaðist Jón prestur Brynjólfsson á
Eiðum. Hafði hann á síðustu árum sínum þolað mikla hrakninga
af Hermanni Jónssvni í Firði í Mjóafirði, er þar bjó og var
hrokkur mikill.“ Af Jóni presti og konu hans er mikill ættbálkut
kominn á Austfjörðum og fjöldi af því fólki komið til Ameríku.
Allflestir í ætt þeirri hafa verið gáfaðir, margir hagorðir.
Jón Sigurðsson ólst upp í æsku í Hólshjáleigu en fluttist til
Njarðvíkur, þegar faðir hans hafði bústaðaskipti við Gísla Gísla-
son bónda í Njarðvík. Hann var vel sjálfmenntaður maður, þeg-
ar haft er tillit til þess, hve lítið tækifæri þeir höfðu til að
menntast, sem uxu upp framan af 19. öld á íslandi. Hann skildi
og las danska og þýzka tungu, þar að auki var hann vel að sér
í sagnfræði og fornfræði, líka með ættfróðari mönnum og einnig
vel hagorður, var nokkuð Eddukveðið hjá honum.
Þó ekki væri langt á milli okkar, varla nema hálf dagleið, sá
ég hann þó ekki nema tvisvar, og sá ég eftir því seinna, því hann
hefði getað frætt sig um ýmislegt úr fornfræði ef ég hefði spurt
hann, sem mér hefði komið vel við ritgjörð þessa. Ég heimsótti
hann nær árslokum 1864, og var ég þá 17 ára gamall. Ég hafði
mikla ánægju af að tala við hann. Hann var að segja mér úr
Frakklandssögu, stjórnarbyltingunni mildu og af Napóleon Bóna-
parta. Hann mundi vel Napóleons ófriðinn, því Jón mun hafa
vcrið fæddur nærri aldamótunum 1800. Næst kom ég til hans að
áliðnum vetri 1876, seinasta árið, sem ég var heima.
Jón Pétursson yfirdómari í Reykjavík hafði bréfaskipti við Jón
í Njarðvík, fékk hjá honum upplýsingar um ættir á Austfjörðum.
Annar maður var, sem leitaði stundum til Jóns með ættartölur,
hinn alkunni merkisprestur síra Sigurður Gunnarsson, fyrst prest-
ur á Desjamýri, þá sóknarprestur Jóns, en flutti að Hallormsstað
1862 og varð þar prófastur í Suður-Múlasýslu, dáinn 1878.
10
Goðasteinn