Goðasteinn - 01.03.1973, Blaðsíða 65
ur það, að Haukafell á Mýrum losnar úr ábúð 1894, og þangað
flytur Einar með konu sína og átta börn þeirra.
Einari fannst hann hafa himinn höndum tekið að komast í
fæðingarsveit sína, þar sem systkini hans og frændfólk voru fyrir.
Ekki man ég, hvað Einar var búinn að vera þarna lengi, þegar
hagur hans var orðinn svo þröngur, að hann varð að leita sveit-
aryfirvalda, en fékk víst daufar undirtektir, og var honum vísað
til Suðursveitar. Ekki könnuðust Suðursveitarmenn við hann sem
sinn mann. Það varð málarekstur út úr þessu milli Mýra og Suð-
ursveitar, sem ég man ekki, hvað stóð lengi. Þá var Sigurður Sig-
urðsson á Kálfafelli oddviti og séra Pétur Jónsson hans stuðn-
ingsmaður. Þeir fengu Harald Briem á Rannveigarstöðum, víst
eitthvað löglærðan, til að standa fyrir máli Suðursveitunga. Har-
aldur var til húsa hjá Sigurði oddvita, og hafði þótzt þar vel
haldinn og gott að vinna með séra Pétri. Þetta stóð nokkuð lengi
j’fir. Málið féll á Mýramenn, og Haraldur áskildi sér rífleg laun
fyrir vikið.
Ekki var þessi málarekstur á miili hreppanna af ósamkomulagi
eða neinu illu, öðru nær, en í þá daga gerðist það, að allir vildu
forðast sveitarþyngsli.
Árið 1899 flytur Einar Sigurðsson með fjölskyldu sína austur
á land, til Mjóafjarðar. Þar giftist Margrét dóttir hans fljótlega
Guðmundi Hallssyni úr Skaftafellssýslu, myndarmanni. Fljótlega
flytur Einar og öll fjölskylda hans vestur á Patreksfjörð og fer að
búa þar á Kambi. Synir Einars voru þá nefndir Kambsbræður
eftir því, þóttu framfaramenn og mikið af þeim látið. Einar átti
það eftir að ganga frakkaklæddur á Reykjavíkurgötum og þannig
mætti Guðmundur í Hoffelli honum þar og Helga syni hans, þá að
kveðja Guðfinn Einarsson, sem var á förum til Kanada. Guð-
finnur bauð Guðmundi til stofu, þar sem hann var settur við
veizluborð ásamt Einari og Helga. Ég las í fréttablaði minningar-
grein um Margréti Einarsdóttur eftir sóknarprest hennar, með lof-
legum vitnisburði. Fyrir tveimur árum las ég líka minningargrein
um konu Sveins Einarssonar eftir tengdason Sveins. Gerði hann
mikið úr Einarssonum. Sveinn átti eitthvað með verzlun, sem
kona hans vann einnig að. Hafði hún verið mjög vel gefin kona.
Goðasteinn
63