Goðasteinn - 01.03.1973, Blaðsíða 85
Hissa verði himinninn á heppni þinni,
frá því skýri maður manni,
meðan byggðum heimur anni.
Stökkum þínum stórum undir Stapinn svigni,
allra manna öfund gugni,
æran taki þér í bugni.
Vel er beðið, vel er aflað, vel er kveðið,
fleira þarf að bera í blaðið
so bragar skipið verði hlaðið.
Fram skal setja fréttirnar í fijótum greinum,
líðan góð á mér og mínum,
mætti gerir hrósa sínum.
Nóg að eta, nóg að klæðast, nægan forða
finn ég þó að fastan harða
fóðri hafi sneydda garða.
Geðið kátt og heilsan hraust á hverjum degi,
veðráttan þó búsæld bagi
bilar ei né fer úr lagi.
Illviðrin, sem alltaf ganga, alla þreyta,
englar mundu eirnin blóta
ættu þeir í snjóum róta.
Mönnum gengur misjafnt enn á marga vega,
aðrir fæðast, aðrir deyja,
ýmsir skrafa, sumir þegja.
Kaffeskortur, tóbaksleysi tyrrir stútinn,
brennivíns og brennis þrotin
baslar öldin hyggju lotin.
Goðastemn
83