Goðasteinn - 01.03.1973, Blaðsíða 83
nú brcgður svo við, að upp í hönd hennar kemur, ekki nýja
hjólið, eins og hún bjóst við, heldur gamla koparhjólið, hreint
og fagurt, eins og það hefði verið lagt þarna fyrir stundarkorni.
Við athugun sást að nýja hjólið var komið innst í hilluna og þar
út í horn.
Þessi þáttur er nú á enda. Hann er að vísu ekki merkilegur,
en hvernig sem þessum fyrirburði hefir verið varið, er þó eitt
víst að enginn gat gert sér grein fyrir því hvernig þetta mátti
verða, og enginn, sem til þekkti, dró í efa, að hann hefði raun-
verulega átt sér stað.
Ur safni dr. Sigurðar Nordals.
UM TÖÐUGJÖLD I KROSSAVÍK ANNO 1801
Lagið er: í Babílon við vötnin ströng.
Töðugjöldin, sem gengu hér,
gjörðu lystuga rekka,
í þeim var hunang, eirninn smér
og ákavít nóg að drekka,
ónbrauð og strjúginn artugar
fyrir ýta báru jómfrúrnar.
Bragnar of fullir urðu,
enn yngismeyjarnar, ei er spé,
örmagna fengu fengu lífsýke.
Réttirnir grand það gjörðu.
Vísa þessi um töðugjöldin í Krossavík í Vopnafirði hjá Guð-
mundi Péturssyni sýslumanni og Þórunni Guttormsdóttur konu
hans er tek-in eftir handriti frá 1849. Merk er hún sem heimild um
töðugjöldin um aldamótin 1800. Örmaga í handriti mun tákna
sama og örmagna og kann vera ritvilla.
Goðasteinn
81