Goðasteinn - 01.03.1973, Page 16
farið úr öllu ncma nærfötunum, en þegar hann kom út úr dalnum,
kvaðst hann ekki hafa komið út í verra veður.
Bóndi þessi var afar ýkinn, sagði sögur, scm höfðu við lítinn
sannleika að styðjast og sumar engan eins og þessi umgetna. En
að öðru leyti var hann meingjörðalaus og sögur hans sköðuðu
menn ekkert. Það var haft gaman af að hlusta á hversu vel hon-
um tókst að færa þær í stílinn.
Þegar dregur suður í miðjan Hraundal, er þar hraun, sem heitir
Sigmundarhraun. Þar mjókkar dalurinn og heldur þeirri lögun,
unz hann er á enda. Þá taka við brekkur upp á heiðarbrún, kall-
að Hraundalsvarp, hvaðan maður sér Loðmundarfjörðinn.
LOÐMUNDARFJÖRÐUR
Stefán Gunnarsson í Stakkahlíð. Björn Halldórsson : Úlfsstöðum.
Af Hraundalsvarpi liggur vegur ofan með hraunám og giljum,
unz komið er að bænum Stakkahlíð. Þar bjó í minni tíð á íslandi
Stefán Gunnarsson bróðir Sigurðar prófasts á Hallormsstað. Kona
hans var Þorbjörg Þórðardóttir frá Kjarna, systir Kristbjargar
konu síra Péturs Jónssonar á Valþjófsstað. Stefán Gunnarsson var
hár maður á vöxt, fríður sýnum, höfðinglegur maður að sjá og
höfðingi í lund eins og margir í ætt hans. Á heimili þeirra hjóna
mætti ferðamaður mikilli alúð og gestrisni. Bæði þau hjón voru
bókhneigð, og man ég, þegar ég var gestur hjá þeim, að þau voru
að lesa danskar skemmtisögur. Sonur þeirra hjóna var Sigurður
bóndi á Hánefsstöðum á Seyðisfirði.
Loðmundarfjörður er stutt frá fjarðarmynni. Fjórir bæir eru
norðan megin fjarðarins. Stakkahlíð er skammt frá fjarðarbotni.
Næst er prcstssetrið Klippstaðir, svo Úlfsstaðir. Þar reisti bú
1856 Björn Halldórsson stúdents, Sigurðssonar prests á Hálsi í
Fnjóskadal, Árnasonar. Móðir Björns var Hildur Eiríksdóttir,
systir hins alkunna guðfræðings Magnúsar Eiríkssonar. Kona
Björns Halldórssonar var Hólmfríður Einarsdóttir, Stefánssonar
prests í Presthólum. Bú þeirra hjóna á Úlfsstöðum stóð með
miklum blóma, úti og inni lýsti sér þar mikil reglusemi. Gest-
risni var þar mikil. Björn skemmti einnig gestum sínum bæði
með söng og fróðleiksræðum. Hann er nú á níræðisaldri en
14
Goðasteinn