Goðasteinn - 01.03.1973, Page 44

Goðasteinn - 01.03.1973, Page 44
víking ok á herskip“. Þá komu og erlendir biskupar, þeir er margt buðu linara en ísleifur biskup og urðu því vinsælir við vonda menn. Sumir hinna erlendu biskupa eru nefndir ermskir, frá Armeníu, og má því ætla, að þeir hafi haft aðrar trúarkenn- ingar. Að lokum fór svo, að erkibiskup bannaði mönnum að þiggja þjónustu af þeim, og hurfu þeir þá úr landi. ísleifur rak skóla í Skálholti og kenndi prestlingum og mun það ekki hafa verið vanþörf, því að mikil prestafæð hefur verið í iandinu. Tveir ncmcnda hans verða síðar biskupar, þcir Kolr Vikverjabiskup og Jón Ögmundsson Hólabiskup. ísleifur var biskup í 24 ár og andaðist 1080. Þá var kosinn til biskups Gissur sonur hans. Var hann lcngi tregur til og taldist undan á marga vegu. ,,En höfð- ingjar hétu honum, að halda hlýðni um öll guðs boðorð, þau er hann legði, ef honum yrði biskupsvígslu auðið“ (Hungutvaka). Fór hann þá utan til vígslu og hélt á fund Licmero erkibiskups í Bremen. Það var vorið 1082. En þá var svo komið vegna deilna Hinriks 4. og páfa í tignarskrýðingarstríðinu, að allt embætti hafði verið tekið af erkibiskupi, þar sem hann studdi keisarann. Gissur hclt því á fund páfans í Róm og sagði honum allan málavöxt ferðar sinnar. Páfinn, Gregor 7., sendi hann þá til Hardvigs erkibiskups í Magdeburg og bauð, að hann skyldi gefa honum vígslu. Gissur kom út árið eftir, þ. c. 1083. Tók hann skjótt mikla virðing í embætti sínu og má segja, að með honum hefjist verulegt þroskaskeið íslenzku kirkjunnar. Hann lét gjöra kirkju nýja í Skálholti og helgaði Pétri postula. Er hann, eftir lát Döllu móður sinnar, fékk yfirráð alls lands í Skálholti, lagði hann jörð- ina til kirkjunnar. Hann kvað svo á og fékk í lög leitt, að stóll biskups þess, er á íslandi væri, skyldi alltaf vera í Skálholti. Gissur biskup skildi við konu sína, sem faðir hans hafði gert, að boði páfa. Skörungsskapur og röggsemi Gissurar kom víða fram og svo mjög stillti hann til friðar og jafnaði deilur höfðingja, að vopnaburður og vígaferli lögðust af til muna um hans daga. En mesta afrek Gissurar var það, að hann kom á tíund og sýnir það bezt, hversu áhrifa hinnar almennu kirkju er hér farið að gæta á hans dögum. Gissur biskup fékk höfðingja landsins á sitt mál og unnu mest að tíundarlöggjöfinni með honum þeir Sæmund- 42 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.