Goðasteinn - 01.03.1973, Side 45

Goðasteinn - 01.03.1973, Side 45
ur fróði og Markús Skeggjason lögsögumaður (1084-1107). Mcð tilliti til íslnzku tíundarlaganna skal það tckið fram, að þau voru ólík því, sem tíðkaðist í öðrum löndum, en þar var tíund hluti af uppskerunni, en á íslandi var um eignaskatt að ræða. Um tíundarlög sjá Dipl. ísl. I 70-162. Tíund var lögtekin á alþingi sumarið 1096 og var það nokkru fyrr en tíund komst á á hinuni Norðurlöndunum. I Noregi á dögum Sigurðar konungs Jórsala- fara, en þó fyrst eftir 1120 í tíð Símonar biskups, og í Danmörku litlu scinna á dögum Nikulásar konungs, cn í Svíþjóð ekki fyrr en alllöngu síðar. Gissur biskup, sem sjálfur var höfðingi og goðorðs- maður, vann að lagasmíð þessari mcð höfðingjum landsins, og er því ekki að undra þótt hún beri nokkurn keim af því. Tíundin skyldi skiptast í fjóra hluti og fengu þar af kirkjur einn og prest- ar einn, en oft rann það óskipt til þeirra stórbænda, cr jarðirnar áttu og höfðu látið reisa á þeim kirkjur, voru sjálfir prestar eða héldu presta. Einn hluti rann til biskups og bætti það mjög úr því vandræða ástandi, er verið hafði, þá biskuparnir höfðu engar fastar tekjur. Fjórði hlutinn rann til þurfamanna og einnig það var hin hyggilegasta ráðstöfun frá sjónarmiði hinna efnuðu í landinu, sem byrðar fátækraframfærslu lentu annars á. Annar mestur atburður í tíð Gissurar, var stofnun biskupsstóls fyrir Norðurland. Sá fjórðungur var stærstur og fjarlægastur Skálholti, svo að ætla má, að Norðlingum hafi þótt sem biskup sinnti þcim varla nóg. Einnig cr hægt að hugsa sér að höfðingjum nyrðra hafi þótt nóg um útlát þau, er bárust úr fjórðungnum í biskupstíundina til Skálholts og einmitt þess vegna óskað eftir eigin stól. Þeir bentu og á, að síður mundi biskupslaust í landinu, ef tveir væru biskupar. Gissur veitti Norðlendingum bæn þeirra og var valinn til biskups Jón Ögmundsson, prestur að Breiðabó'- stað í Fljótshlíð. Hann fór utan með bréfum Gissurar biskups á fund Paschalis 2. páfa (1099-1118) og síðan á fund Össurar erkibiskups (1104-1137) í Lundi, sem vígði hann 1106. Jón hélt því næst til íslands og setti biskupsstólinn á Hólum í Hjaltadal. Með komu Jóns biskups færist nýr andi og líf í kristnina norð- anlands. Hann hafði hlotið klerklega mcnntun í Skálholti hjá ísleifi biskupi, cn cftir það leitað til útlanda og stundað nám Goðasteimi 43

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.