Goðasteinn - 01.03.1973, Side 75

Goðasteinn - 01.03.1973, Side 75
Oddgeir Guðjónsson i Tungu „Hér legg ég orð í belg“ Margt hefur verið rætt og ritað um manntjónið á Fjallabaks- leið árið 1868, þegar þeir urðu úti þar Þorlákur í Gröf, Jón Runólfsson, Árni Jónsson og Davíð frá Leiðvelli, og sýnist þar sitt hverjum, hvað varð þess valdandi að þeir náðu ekki í Hvann- gil eins og fyrirhugað var. Sjálfsagt hefur átt sinn þátt í því, mjög slæm færð á Mælifellssandi vestanverðum og sennilega ófær kvíslin, sem rennur framanvið Hvanngilið, en yfir hana varð að fara ef komast átti í sæluhúsið í Gilinu, eins og þeir höfðu ákveðið, og gista þar. Má geta sér til, að jafn einbeittir menn og þeir félagar voru, hafa ekki snúið frá Kvíslinni að óreyndu og sjálfsagt hlotið þar nokkurn hrakning. Sennilegt er, að þeir hafi horfið þar frá vonsviknir og haldið til efri leiðarinnar, sem liggur með undirhlíðum Torfajökuls, en þreyta og frost neytt þá til að setjast að undir klapparbríkinni, þar sem líkin fundust og hefur þá verið suðvestan átt, sennilega með hvössum éljum. I frásöguþætti, sem Pálmi heitinn Hannesson ritaði um þetta slys í 1. bindi bókarinnar Hrakningar og hciðarvegir, lætur hann að því liggja að Jón Runólfsson, kempan, hafi notað mathníf Goðasteinn 73

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.