Goðasteinn - 01.06.1974, Síða 5
Björg Jónsdóttir frá Ásólfsskála:
Hagalagðar
úr
Landeyjum
F>'h- frá síðasta hefti.
Litið til veðurs
Landeyjar eru hluti af Suðurlandsundirlendi, frjósömu og góðu
landi, girtu fjölium á þrjá vegu, cn upp að suðurströndinni fellur
úthafsaldan í allri sinni fjölbreyttu fegurð. Þó andardráttur hennar
geti verið þungur, er hitt þó tíðara, að hún láti blítt eins og
móðir við barn. Nokkuð getur veðurfar verið óstöðugt á þessum
slóðum og fljótt að breyta um svip, en það hefur gjört fólkið,
sem þar á heima, næmt og athugult á allar veðurbreytingar. Sér-
staklega var formönnum þar viðbrugðið, enda ómctanlegt á þeim
ttma, er veðurfregnir útvarps og sjónvarps var ekki við að styðjast.
Mörgu smáu var raðað saman, blikum í lofti, þokubelti á fjöll-
um, atferli dýra, gigtarstingjum, draumförum, og mætti svo lcng-
ur telja.
Það er sól og sumardýrð yfir landi, hvergi sést skýskaf á lofti,
og Ijúfur blærinn strýkur þýtt um vanga. Þessi milda gola heitir
á máli alþýðu sólfar og fylgir sól. Fleiri nöfn hefur hún hlotið
Goðasteinn
3