Goðasteinn - 01.06.1974, Page 11

Goðasteinn - 01.06.1974, Page 11
Er þá skipið sett á flot með hröðum handtökum, en formaður og bitamaður ýta á eftir og baka skipið. Komið gctur fyrir, ef dráttur er í sjó, að aldan ýti skipinu til baka. Er þá kallað að því slái upp. Verður þá að byrja á nýjan leik. Þcgar komið er út á legu, taka sjómenn ofan höfuðföt sín og biðja sjóferðamannsbænina. Að því loknu er haldið á mið. Dæmi voru þess, að einn maður stafnsetti litla kænu, sem not- uð var við veiðiskap á vatni. Sumir kölluðu þetta að stafnflytja. Bitamaður er ráðgjafi formanns í sjóferðum. Þótti virðing að vera kjörinn tii þess starfs. En úrslitavald hafði formaður jafnan. Framan við barka í skipi er svonefnd krús, mátulega stór fyrir krakka til að sitja í og var oft notuð þannig, þegar skip stóð uppi á þurru landi. Sumir nefndu þetta grús. Undir sæti formanns aftur í skut var afþiljað hólf. Þar var hægt að stinga í trefli og vettlingum, einnig sjóbita og sýrudrukk. Faðir minn, sem lengi var formaður, hafði alltaf í þessu hólfi litla skaröxi, meðan setið var á sjó. Kolluband nefndist langur kaðall, sem var festur innan í stefni skips við sveran járnhring. Það var hringað upp í krúsinni. Kollu- bandsmaður átti sitt rúm í barka, en sjá mátti hann með kollu- bandið sitja klofvega á stefninu í landróðri. Hann hljóp með bandið upp í fjöruna, þegar skipið tók niðri. Veitti ekki af, að þar færi vaskur drengur með vænan spotta, ef vondur var sjór. Kolluband heyrði ég nefnt fangalínu, en ekki algengt. Dragreipi voru liðlegir kaðlar. Með þeim voru dregin segl að hún. Segl á áraskipum voru úr þykku boldangi. 1 þau voru festir með vissu millibili grannir spottar, sem nefndust stög. Ef segl voru uppi og stormur færðist í aukana, voru seglin rifuð. Það var gjört með þeim hætti, að stögin voru bundin saman tvö og tvö. Kom þá feiling í seglið svo dró úr hraða skipsins. Á stefni skips- ins að framan var fest lárétt stöng, bugspjót (útleggjari). Við það var bundinn fokkustrengurinn. Stundum var móti falli og vindi að sækja, er róið var í land. Um það voru notuð orðin að berja og barningur. Til uppörv- unar heyrðist sagt: „Ætli við merjum það ekki.“ Dæmi voru þess, að sjóveikum manni væri strítt með því á Goðaslehvi 9

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.