Goðasteinn - 01.06.1974, Page 16

Goðasteinn - 01.06.1974, Page 16
Slógsekkur Maður kvartar undan allt of stórum sokkum og segir gramur: „Þetta eru meiri slógsekkirnir; ég kæmist allur í þá.“ Slógsekkur var skinnbelgur, mun stærri en skinnskjóðurnar undir kaffibaunir og sykur. Slógsekkir voru notaðir undir fiskslóg, sem oft þurfti að flytja langa leið, þegar stóð í róðrum við sandana. Menn úr Fljótshlíð og Hvolhreppi lágu við á sjóbæjunum. Gett var að aflanum, þegar komið var af sjó, ef sjóveður var samfelit í nokkra daga. Svil Þorsksvil voru hagnýtt á tvennan hátt. Þau voru soðin ný og lát- in í kálfsdrukkinn eða kösuð fyrst og síðan þurrkuð til að sjóðast síðar handa hundinum. Fyrir kom að menn lögðu sér svil til munns. Nceli Næli nefndust prjónar, sem konur notuðu til að næla skotthúfu á hár sitt. Ef vanhöld urðu á prjónunum, var stundum notast við saumnálar, sem augað hafði brotnað af, og voru þær upp frá því kallaðar næli. Þegar ég var að vaxa úr grasi eftir aldamótin 1900, var skott- húfan á hröðu undanhald.i sem hluti af hversdagsklæðnaði kvenna, en hélt virðingu sinni, er mest var haft við. Vel man ég nokkrar aldraðar konur, scm gengu daglega með skotthúfu og voru virðu- legir fulltrúar síns tíma. Þær báru höfuðið hátt þrátt fyrir raunir og strit áranna og áttu alltaf ástúðlegt bros í garð barnsins og mjúka hönd til að strjúka tár af vanga eða ylja litlum lófa. Karkambar Mér er það í barnsminni, að tjl voru á heimilinu gamlir karnbar, sem kallaðir voru karkambar. Þeir voru íslensk smíði. Tindarnir voru sívalir en grófir og töluvert bil á milli þeirra. Kembt var í þeim tog og úrgangsull (ullarhnak). Vel getur líka verið, að ull hafi verið kembd í þeim í fyrri kembingu og jafnvel hross- hár, en um það þori ég ekki að segja. 14 Godasleinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.