Goðasteinn - 01.06.1974, Side 23

Goðasteinn - 01.06.1974, Side 23
Grjúpán I grjúpán (bjúga) er notað kjöt, sem gengur úr, þegar brytjað er spað. Áður fyrr voru garnirnar einnig notaðar. Hleypt var upp a þeim suðu í potti, þær síðan skafnar vandlega og látnar saman V1ð í saxið. Mörinn var brytjaður og settur saman við saxið, síðan íalið upp í langana. Vírhringur var settur í langaopið svo hægara Víeri að fela upp. Á meðan ekki voru til hakkavélar á heimilum, voru til stór s°x, í laginu eins og gömlu tóbaksjárnin. Með þeim var saxið skorið á stórum trébrettum. Spýtt var fyrir langana með kerlingarprjónum úr tálknvæng. Hafði áður verið tálgaður á þá oddur. Seinna var tekið upp að sauma fyrir langana í stað þess að nota prjóna. Orðtakið ,,að spýta fyrir“ mun frá þeim tíma, er ,,spýtt“ var fyrir langa og blóðmörs- iður með tréprjónum. Fénái og bein Mjóar beinnálar, sem finnast stundum í kindakjöti nálægt legg, heita fénálar. Finnandi fénálar, sem geymir hana vel, verður fé- sæll. Aldrei skyldi brjóta bein til mergjar heldur bora. Átti brotið að valda eigandanum fjárskaða. Leyst frá skjóðunni Eg hef áður minnst á skjóðuna gömlu. Hún var talin mesta þarfa- þing og hafði margt að geyma, sem stundum var beðið eftir með óþreyju. Mörg húsmóðir hýrnaði undir brún við að sjá sitt pundið af hvoru (kaffi, sykur) koma upp úr ferðaskjóðunni, þegar heim- ilið var orðið alveg vitundarlaust. Smalinn fékk hnífinn sinn og heimasætan silkiklútinn. Að ekki sé nú nefnd ánægjan, ef lang- þráð sendibréf kom í leitirnar eða bók, sem svo var lesin upp til agna á skammdegisvökum. En nú er veldi skjóðunnar liðið undir lok og taskan komin í staðinn. Koddinn hennar ömmu Amma mín átti lítinn kodda. I honum var fífa í staðinn fyrir Goðasteinn 21

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.